611/2026
Reglugerð um (32.) breytingu á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/397 frá 23. febrúar 2026 um leyfi til að setja á markað laktó-N-tetraósa, sem er framleiddur með afleiddum stofni Escherichia coli K-12 MG1655 (ATCC 700926), sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 292.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/391 frá 23. febrúar 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470 að því er varðar skilyrði fyrir notkun og sértækar kröfur um merkingu á nýfæðinu gerilsneyddar Akkermansia muciniphila. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 288.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/386 frá 20. febrúar 2026 um leyfi til að setja á markað fitusneytt repjufræsduft sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 281.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 28. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 1. júní 2026