610/2026
Reglugerð um (24.) breytingu á reglugerð nr. 1205/2021 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 um aukefni í fóðri.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætast fimmtán nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2590 frá 18. desember 2025 um leyfi fyrir L valíni, sem er framleitt með Corynebacterium glutamicum KCCM 80365, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 222.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2576 frá 18. desember 2025 um leyfi fyrir blöndu með Bacillus subtilis DSM 32324, Bacillus subtilis DSM 32325 og Bacillus amyloliquefaciens DSM 25840 sem fóðuraukefni fyrir allar tegundir alifugla sem eru aldar til varps eða til undaneldis (leyfishafi er Chr. Hansen A/S) og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/1762 að því er varðar skilmála leyfis fyrir blöndu með Bacillus subtilis DSM 32324, Bacillus subtilis DSM 32325 og Bacillus amyloliquefaciens DSM 25840 sem fóðuraukefni fyrir allar tegundir alifugla til eldis eða sem eru aldar til varps eða til undaneldis. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 215.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2575 frá 18. desember 2025 um að taka tiltekin fóðuraukefni af markaði. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 207.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2566 frá 18. desember 2025 um leyfi fyrir L-lýsínsúlfati og L-lýsínmónóhýdróklóríði, sem eru framleidd með Corynebacterium glutamicum CGMCC 7.453, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 201.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/103 frá 15. janúar 2026 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með Enterococcus lactis DSM 7134 sem fóðuraukefni fyrir gyltur (leyfishafi er Lactosan GmbH&Co.KG) og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1083/2014. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 198.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/98 frá 15. janúar 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/565 að því er varðar nafn leyfishafa fyrir fóðuraukefnum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 196.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/96 frá 15. janúar 2026 um leyfi fyrir sellerífræsilmkjarnaolíu úr Apium graveolens L. og kúmenilmkjarnaolíu úr Carum carvi L. sem fóðuraukefni fyrir tilteknar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 188.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/95 frá 15. janúar 2026 um að taka okt-2-enal, dek-2-enal, 2-hexenal, 3,5-oktadíen-2-ón, dek-2-ensýru, fenetýl própíónat, metýldekanóat, etýldek-2-enóat, etýldek-4-enóat, bútýlamín, 3-metýlbútan-1-þíól, 2-metýlfúran, 2-asetýl-5-metýlfúran, 2-asetýl-3-metýlpýrasín og píkólínbeta (3-metýlpýrídín) af markaði sem fóðuraukefni fyrir ketti og hunda. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 185.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/93 frá 15. janúar 2026 um leyfi fyrir L-lýsínsúlfati, sem er framleitt með Corynebacterium glutamicum CGMCC 23982, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 181.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/92 frá 14. janúar 2026 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með Bacillus velezensis ATCC PTA-6737 sem fóðurau kefni fyrir varphænur og aukategundir alifugla til varps, leyfi fyrir blöndu með Bacillus velezensis ATCC PTA-6737 sem fóðuraukefni fyrir aðra fugla sem eru haldnir til eggjaframleiðslu eða undaneldis (leyfishafi er Kemin Europa N.V.) og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1020. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 177.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/91 frá 14. janúar 2026 um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu með 6-fýtasa, sem er framleiddur með Trichoderma reesei CBS 126897, sem fóðuraukefni fyrir alifugla, fráfærugrísi, eldissvín og gyltur, leyfi fyrir blöndu með 6-fýtasa, sem er framleiddur með Trichoderma reesei CBS 126897, sem fóðuraukefni fyrir skrautfugla, spenagrísi og aukategundir svína (leyfishafi er AB Enzymes Finland Oy) og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 292/2014. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 173.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/90 frá 14. janúar 2026 um leyfi fyrir L-arginíni, sem er framleitt með Corynebacterium glutamicum KCCM 80393, sem fóðuraukefni fyrir allar dýrategundir. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 169.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/89 frá 14. janúar 2026 að því er varðar synjun um endurnýjun á leyfi fyrir blöndu sem inniheldur reykbragð efnakjarna-2b0001 sem fóðuraukefni fyrir hunda og ketti og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1076/2014. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 166.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/85 frá 14. janúar 2026 um leyfi fyrir tartrasíni sem fóðuraukefni til notkunar í beitu fyrir ferskvatnsfiska sem gefa af sér afurðir til manneldis. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 161.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2556 frá 17. desember 2025 um leyfi fyrir blöndu með endó-1,4-betaxýlanasa, sem er framleiddur með Komagataella phaffii DSM 25376, og endó-1,3(4)-betaglúkanasa, sem er framleiddur með Komagataella phaffii DSM 26469, sem fóðuraukefni fyrir kjúklinga sem eru aldir til varps eða til undaneldis, kalkúna til undaneldis, aukategundir alifugla til eldis og aukategundir alifugla til varps eða til undaneldis (leyfishafi er Kaesler Nutrition GmbH) og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/1090 að því er varðar skilmála leyfis fyrir blöndu með endó-1,4-betaxýlanasa, sem er framleiddur með Komagataella phaffii DSM 25376, og endó-1,3(4)-betaglúkanasa, sem er framleiddur með Komagataella phaffii DSM 26469, sem fóðuraukefni fyrir eldiskjúklinga og kjúklinga sem eru aldir til að verða varphænur. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 154.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 28. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 1. júní 2026