Við 4. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
Reglubundnir farþegaflutningar: "Reglubundnir flutningar" og "sérstakar áætlunarferðir", í samræmi við skilgreiningu í 2. og 3. lið 2. gr., í þeirri röð, í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1073/2009 (*), hvort sem um er að ræða flutninga innanlands eða milli landa.
Óreglubundnir farþegaflutningar: "Óreglubundnir flutningar", í samræmi við skilgreiningu í 4. lið 2. gr. reglugerðar (EB) nr. 1073/2009, hvort sem um er að ræða flutninga innanlands eða milli landa.
Við 8. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ökumaður sem stundar óreglubundna farþegaflutninga má einnig skipta út hléinu, sem um getur í fyrstu málsgrein, fyrir tvö hlé sem eru að minnsta kosti 15 mínútur í senn, dreift yfir aksturstímann sem um getur í fyrstu málsgrein, þannig að ákvæði fyrstu málsgreinar séu uppfyllt.
Við 11. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Að því tilskildu að umferðaröryggi og vinnuaðstæðum sé ekki teflt í tvísýnu er ökumanni, sem stundar staka óreglubundna farþegaflutninga í að minnsta kosti sex sólarhringa samfellt, heimilt að víkja frá ákvæðum 1. mgr. 10. gr. reglugerðar þessarar með því að taka daglegan hvíldartíma einu sinni innan 25 klukkustunda frá lokum síðasta daglegs eða vikulegs hvíldartíma, að því tilskildu að samanlagður aksturstími þann dag hafi ekki farið yfir sjö klukkustundir. Að uppfylltum sömu skilyrðum er heimilt að nýta þessa undanþágu tvisvar í stökum óreglubundnum farþegaflutningum sem standa yfir í að minnsta kosti átta sólarhringa samfellt. Beiting þessarar undanþágu er með fyrirvara um hámarksvinnutíma samkvæmt gildandi lögum.
13. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Heimilt er í einstaka óreglubundnum farþegaflutningum, að fresta vikulegum hvíldartíma ökumanns fram í næstu viku og bæta hvíldartímanum (reglubundnum eða styttum) við vikulegan hvíldartíma (reglubundinn) þeirrar viku enda fari heildaraksturstími á vikunum tveimur ekki yfir 90 klukkustundir, sbr. regluna í 3. mgr. 6. gr., og að uppfylltum skilyrðum 12. gr. Heimildin gildir um ferð sem tekur lengri tíma en sex daga en þó ekki lengri en tólf daga.
Við 19. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Í tengslum við vegaeftirlit, þar til stafræn akstursskrá liggur fyrir, verður ökumaðurinn að geta réttlætt beitingu undanþága skv. þriðju málsgrein 2. mgr. 8. gr., 2. mgr. 11. gr. og 13. gr. með því:
1. mgr. 47. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Lögregla skal á vegum og í bækistöð flytjanda hafa reglubundið eftirlit með því að fylgt sé reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna og reglum um notkun ökurita sem að minnsta kosti fullnægi lágmarksskilyrðum um eftirlit samkvæmt reglugerð þessari.
Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1886 frá 10. júlí 2024 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 165/2014 að því er varðar inntak grunnþjálfunar og símenntunar eftirlitsmanna í greiningu skráðra gagna og eftirlit með ökuritum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 43/2026, 6. febrúar 2026, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 491-496.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1258 frá 24. apríl 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 561/2006 að því er varðar lágmarkskröfur um lágmarksvinnuhlé og daglegan og vikulegan hvíldartíma á sviði óreglubundinna farþegaflutninga og að því er varðar valdheimildir aðildarríkjanna til að beita viðurlögum vegna brota á reglugerð (ESB) nr. 165/2014 sem framin eru í öðru aðildarríki eða í þriðja landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 42/2026, 6. febrúar 2026, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 485-940.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 54. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 28. maí 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 29. maí 2026