Í stað orðsins "Umhverfisstofnun" í 1. gr. reglugerðarinnar og sama orðs hvarvetna annars staðar kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfis- og orkustofnun.
Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
| 54) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/877 frá 12. maí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á tilteknum efnum, sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða sem efni sem hafa eiturhrif á æxlun, í snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 283/2025, 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 576-579. | |
| 55) | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/78 frá 12. janúar 2026 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á tilteknum efnum, sem eru flokkuð sem krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða sem efni sem hafa eiturhrif á æxlun, í snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2026, 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 253-259. |
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:
Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 27. maí 2026.
F. h. r.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.
Hugi Ólafsson.
B deild - Útgáfudagur: 29. maí 2026