Dómsmálaráðuneyti

577/2026

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. 12. tölul. breytist sem hér segir:
    Í stað orðanna "Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1393 er birt sem fylgiskjal II við reglugerð þessa." komi: Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 80 frá 18. desember 2025, bls. 358-359.
  2. Við bætist nýr töluliður, 13. töluliður, svohljóðandi:
    Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/46 frá 3. desember 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um að bæta Rússlandi á skrá yfir áhættusöm þriðju lönd með annmarka í stefnu, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24, 9. apríl 2026, bls. 478-480.
  3. Við bætist nýr töluliður, 14. töluliður, svohljóðandi:
    Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/83 frá 4. desember 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um að bæta Bólivíu og Bresku Jómfrúaeyjum á skrá yfir áhættusöm þriðju lönd sem hafa sett fram skriflega, pólitíska skuldbindingu háttsettra aðila til að ráða bót á þeim annmörkum sem greinst hafa og hafa útbúið aðgerðaáætlun með FATF og um að fjarlægja Búrkína Fasó, Malí, Mósambík, Nígeríu, Suður-Afríku og Tansaníu af þeirri skrá, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24, 9. apríl 2026, bls. 481-484.

2. gr.

Listi yfir áhættusöm þriðju lönd, sem birtur er sem fylgiskjal I við reglugerð nr. 105/2020, tekur breytingum til samræmis við þær breytingar sem greinir í 1. gr. reglugerðar þessarar. Listinn er birtur sem fylgiskjal I við reglugerð þessa þannig breyttur.

3. gr.

Fylgiskjal II, viðvíkjandi birtingu framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1393 ásamt viðauka, fellur brott.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018, og öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 18. maí 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild - Útgáfudagur: 29. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica