569/2025
Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 17. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/636 frá 25. mars 2025 um breytingu á III. og V. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum, fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og eigin staðfestingu vegna komu inn í Sambandið eða umflutnings gegnum Sambandið á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara, sem eru ætluð til manneldis, til þriðja lands.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðin sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 19/2025.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. maí 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.