Í stað "65" í b-lið 1. tölul. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 75.
Á eftir 1. málsl. 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Endurmenntun skal þá lokið að nýju fyrir næstu endurnýjun.
2. mgr. a-liðar 18. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Umsækjandi skal hafa staðist verklegt próf áður en 12 mánuðir eru liðnir frá því hann stóðst bóklegt próf.
Í stað orðanna "einn mánuð eftir að skilyrðum um fasta búsetu er fullnægt" í 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar kemur: 12 mánuði.
Á eftir 3. mgr. 40. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi, og breytist röð annarra málsgreina samkvæmt því: Starfsleyfi skal gilda í fimm ár.
Orðin "Í sjálfskiptri kennslubifreið skal í stað fótstigs fyrir kúplingu vera gírstöng eða annar slíkur búnaður sem er komið þannig fyrir að ökukennari geti rofið aflrás." í 3. mgr. 2. tölul. IV. viðauka við reglugerðina falla brott.
Eftirfarandi breytingar verða á VIII. viðauka reglugerðarinnar:
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 58. gr., 62. gr. og 64. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 11. maí 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 28. maí 2026