Atvinnuvegaráðuneyti

565/2025

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 237/2023 um gildistöku framkvæmdarreglna framkvæmdastjórnarinnar um vernd heita á víni skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2742 frá 18. október 2024 um færslu heitis í skrána yfir verndaðar upprunatáknanir og verndaðar landfræðilegar merkingar (Urbezo (VUT)). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 39/2025 frá 7. febrúar 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 22. maí 2025, bls. 104.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga um matvæli, nr. 93/1995.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. maí 2025.

 

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Svava Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica