Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 16. júní 2023

55/2022

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæður.

1. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópu-sambandsins, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 1 við EES-samninginn.

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/35 frá 10. október 2014 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga (Gjaldþolsáætlun II), sbr. leiðréttingar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins L 307, 25.11.2015, bls. 31, sem er birt á bls. 1-797 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 51 frá 2. ágúst 2018, með breytingum samkvæmt eftirfarandi gerðum:

    1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/467 frá 30. september 2015 um breytingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 35/2015 að því er varðar útreikninginn á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir nokkra eignaflokka í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga, sem birt er á bls. 429-442 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 17. maí 2018.
    2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1542 frá 8. júní 2017 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir tiltekna flokka eigna í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga (innviðafyrirtæki), sem birt er á bls. 45-52 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16 frá 12. mars 2020.
    3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/981 frá 8. mars 2019 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga (Gjaldþolsáætlun II), sem birt er á bls. 24-153 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 78 frá 9. desember 2021.
    4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/442 frá 17. desember 2019 um leiðréttingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga (Gjaldþolsáætlun II), sem birt er á bls. 60-65 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 66 frá 14. október 2021.
    5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1256 frá 21. apríl 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar samþættingu áhættu tengda sjálfbærni í stjórnkerfum vátrygginga- og endurtryggingafélaga, sem birt er á bls. 310-313 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 70 frá 27. október 2022.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/460 frá 19. mars 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar verklagsreglur um samþykki eigin líkans í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem birt er á bls. 7-12 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018.
  3. Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/498 frá 24. mars 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar málsmeðferð við samþykki eftirlitsyfirvalda til að nota breytur sem eiga við tiltekið félag í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem birt er á bls. 81-84 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/499 frá 24. mars 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar málsmeðferðarreglur sem nota skal við veitingu samþykkis eftirlitsyfirvalda fyrir notkun stuðningsgjaldþolsliða í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem birt er á bls. 85-90 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/500 frá 24. mars 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar málsmeðferðarreglur sem fylgja skal við samþykki eftirlitsyfirvalda á umsókn um aðlögun vegna samræmingar í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem birt er á bls. 13-17 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2012 frá 11. nóvember 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar málsmeðferðarreglur sem fylgja skal við ákvarðanir um að fastsetja, reikna út og afnema viðbótargjaldþolskröfur í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem birt er á bls. 20-23 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2014 frá 11. nóvember 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar verklagsreglur og sniðmát fyrir framlagningu upplýsinga til eftirlitsaðila samstæðu og fyrir upplýsingaskipti milli eftirlitsyfirvalda í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem birt er á bls. 26-30 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1630 frá 9. september 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar málsmeðferðarreglur sem fylgja skal við beitingu á umbreytingarráðstöfuninni fyrir undireiningu hlutabréfaáhættu í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem birt er á bls. 187-189 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 85 frá 20. desember 2018.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2451 frá 2. desember 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar sniðmát og fyrirkomulag við birtingu eftirlitsyfirvalda á sértækum upplýsingum í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem birt er á bls. 30-90 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 76 frá 26. september 2019.

Reglugerðir skv. a-lið 1. tölul. og 2.-9. tölul. 1. mgr. voru teknar upp í EES-samninginn með ákvörðun sameignlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2018 frá 23. mars 2018 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 41-48.

Reglugerð skv. b-lið 1. tölul. 1. mgr. var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2019 frá 14. júní 2019.

Reglugerð skv. c-lið 1. tölul. 1. mgr. var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 41/2020 frá 20. mars 2020.

Reglugerð skv. d-lið 1. tölul. 1. mgr. var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 156/2020 frá 23. október 2020.

Reglugerð skv. e-lið 1. tölul. 1. mgr. var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2022 frá 29. apríl 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 90.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. mgr. 30. gr., 12. mgr. 31. gr., 8. mgr. 32. gr., 1. mgr. 50. gr., 3. mgr. 57. gr., 3. mgr. 74. gr., 87. gr., 95. gr., 1. og 2. mgr. 103. gr., 110. gr., 3. mgr. 112. gr., 114. gr. og 1. mgr. 121. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, og 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 54. gr. laga um vátryggingasamstæður, nr. 60/2017, öðlast þegar gildi.

Við gildistöku reglugerðarinnar falla eftirfarandi reglugerðir úr gildi:

  1. Reglugerð nr. 940/2018 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæður, með síðari breytingum.
  2. Reglugerð nr. 984/2019 um tæknilega framkvæmdastaðla varðandi málsmeðferðarreglur sem Fjármálaeftirlitið skal fylgja við samþykki á umsókn um aðlögun vegna samræmingar.
  3. Reglugerð nr. 120/2020 um sniðmát og birtingu Fjármálaeftirlitsins á sértækum upplýsingum samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 11. janúar 2022.

F. h. fjármála- og efnahagsráðherra,

Guðrún Þorleifsdóttir.

Hjörleifur Gíslason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.