546/2026
Reglugerð um (23.) breytingu á reglugerð nr. 1205/2021 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1831/2003 um aukefni í fóðri.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2511 frá 11. desember 2025 um leyfi fyrir blöndu með Bacillus paralicheniformis DSM 33902 og Bacillus subtilis DSM 33903 sem fóðuraukefni fyrir jórturdýr til mjólkurframleiðslu/undaneldis (leyfishafi er Chr. Hansen A/S) Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 79.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. maí 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
B deild - Útgáfudagur: 22. maí 2026