542/2026
Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 205/2023 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænt ræktaðra vara.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1470 frá 23. júlí 2025 um fyrirkomulag við birtingu skránna yfir rekstraraðila og hópa rekstraraðila og mikilvægra upplýsinga sem varða vottorð sem eru gefin út handa rekstraraðilum og hópum rekstraraðila í samræmi við 1. mgr. 35. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 105.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, og II. kafla laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 21. maí 2026.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 22. maí 2026