Utanríkisráðuneyti

524/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Haítí, nr. 55/2023.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/601 frá 24. mars 2025 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2022/2319 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins á Haítí, sbr. fylgiskjal 1.4.
2.4 Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/608 frá 24. mars 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2022/2309 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins á Haítí, sbr. fylgiskjal 2.4.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 30. apríl 2025.

 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica