Atvinnuvegaráðuneyti

520/2026

Reglugerð um (31.) breytingu á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði.

1. gr. 

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast ellefu nýir töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1263 frá 30. júní 2025 um leyfi til að setja á markað ristuð fræ Dipteryx alata Vogel (baru) sem hefðbundin matvæli frá þriðja landi og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 362.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1509 frá 25. júlí 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470 að því er varðar nákvæma skilgreiningu á nýfæðinu plöntusterólum/plöntustanólum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 366.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1513 frá 28. júlí 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470 að því er varðar skilyrði fyrir notkun og frekari kröfur um merkingar á nýfæðinu olíu úr Calanus finmarchicus. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 371.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1515 frá 28. júlí 2025 um leyfi til að setja á markað olíu úr Schizochytrium limacinum (ATCC-20889) sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 375.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1537 frá 29. júlí 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470 að því er varðar skilyrði fyrir notkun á nýfæðinu 3-fúkósýllaktósa sem er framleitt með afleiddum stofni Escherichia coli BL21 (DE3). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 380.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1528 frá 30. júlí 2025 um leyfi til að setja á markað olíu úr Cyperus esculentus (hnetusveipsef) sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 384.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1530 frá 30. júlí 2025 um leyfi til að setja á markað kalíummagnesíumtríklóríðhexahýdrat sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 388.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1549 frá 30. júlí 2025 um leiðréttingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2023/2210 og (ESB) 2022/1365 að því er varðar skilyrði fyrir notkun á nýfæðinu 3-fúkósýllaktósa sem er framleitt með afleiddum stofni Escherichia coli K-12 DH1 og nýfæðinu olíu úr Schizochytrium sp. sem er auðug af dókósahexensýru og eikósapentensýru. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2026 frá 6. febrúar 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 394.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2233 frá 6. nóvember 2025 um leyfi til að setja á markað Clostridium butyricum TO-A sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 123.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2242 frá 7. nóvember 2025 um leyfi til að setja á markað útdrátt úr gulum tómötum sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 129.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2245 frá 7. nóvember 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470 að því er varðar skilyrði fyrir notkun á nýfæðinu olíu úr Schizochytrium sp. (ATCC PTA-9695). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 134.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. maí 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 20. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica