Fjármála- og efnahagsráðuneyti

496/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 950/2017, um sérleyfissamninga um verk eða þjónustu yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins.

1. gr.

1. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar um viðmiðunarfjárhæðir orðist svo:

Reglugerðin gildir um sérleyfi þar sem áætlað verðmæti samnings, án virðisaukaskatts, er jafnt eða meira en 797.372.000 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2025/2151 frá 22. október 2025 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/23/ESB að því er varðar viðmiðunarfjárhæð vegna sérleyfa.

Reglugerðin er sett með heimild í 3. mgr. 12. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og
öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 4. maí 2026.

F. h. r.

Jón Gunnar Vilhelmsson.

Þorsteinn Júlíus Árnason.

B deild - Útgáfudagur: 19. maí 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica