2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs innanlands, samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup að teknu tilliti til breytinga á vísitölu neysluverðs, eru fyrir verksamninga 75.800.000 kr. Innkaup fyrir vöru- og þjónustusamninga innanlands skulu miðast við viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu sem fram koma í 3. gr. reglugerðar þessarar.
3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup skulu vera sem hér segir:
Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á vegum þeirra eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:
| Vörusamningar | 20.657.000 kr. | |
| Þjónustusamningar | 20.657.000 kr. | |
| Verksamningar | 797.372.000 kr. |
Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:
| Vörusamningar | 31.871.000 kr. | |
| Þjónustusamningar | 31.871.000 kr. | |
| Verksamningar | 797.372.000 kr. |
4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Viðmiðunarfjárhæð vegna innkaupa á opinberum þjónustusamningum um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu samkvæmt VIII. kafla laga um opinber innkaup, sem gerðir eru af opinberum aðilum, er 110.664.000 kr.
5. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Viðmiðunarfjárhæðir vegna kostnaðarþátttöku opinberra aðila, sbr. 14. gr. laga um opinber innkaup, skulu vera 797.372.000 kr. vegna verksamninga og 31.871.000 kr. vegna þjónustusamninga.
6. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Þegar innkaupum á fyrirhuguðu verki eða þjónustu er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga skal miða við samanlagt virði allra samninganna. Sama á við þegar innkaupum á vöru af svipaðri tegund er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga. Sé samanlagt virði allra samninganna yfir viðmiðunarfjárhæðum skal líta svo á að verðgildi hvers og eins samnings sé einnig yfir viðmiðunarmörkum.
Þrátt fyrir að heildarvirði samninga sem greinir í 1. mgr. sé yfir viðmiðunarfjárhæðum er heimilt að gera einstaka samninga án útboðs fyrir allt að 20% af samanlagðri heildarfjárhæð allra samningshluta ef áætlað verðmæti viðkomandi samningshluta, án virðisaukaskatts, er lægra en 11.804.000 kr. vegna vöru eða þjónustu og 147.552.000 kr. vegna verks.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2152 frá 22. október 2025 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/24/ESB að því er varðar viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra vöru-, þjónustu- og verksamninga og hönnunarsamkeppna.
Reglugerðin er sett með heimild í 23. gr. laga um opinber innkaup, nr. 120/2016, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 4. maí 2026.
F. h. r.
Jón Gunnar Vilhelmsson.
Þorsteinn Júlíus Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 19. maí 2026