10. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs, jafnt innanlands sem og á Evrópska efnahagssvæðinu, skulu vera sem hér segir:
63.742.000 kr. þegar um er að ræða vöru- og þjónustusamninga,
797.372.000 kr. þegar um er að ræða verksamninga.
Samkvæmt reglugerð þessari skal bjóða út öll innkaup sem eru yfir viðmiðunarfjárhæðum, samkvæmt 1. mgr., í samræmi við þau innkaupaferli sem nánar er kveðið á um í VI. kafla.
Við innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum skal kaupandi ávallt gæta hagkvæmni og gera samanburð meðal sem flestra fyrirtækja. Slíkur samanburður skal jafnan gerður bréflega eða með rafrænni aðferð. Við þessi innkaup skal virða jafnræðisreglu 5. gr. svo og ákvæði 25. gr. um tækniforskriftir.
18. gr. reglugerðarinnar, ásamt fyrirsögn, orðist svo:
Miðlæg innkaupastofnun.
Á vegum ríkisins er rekin miðlæg innkaupastofnun, sbr. 99. gr. laga um opinber innkaup, nr. 120/2016. Stofnunin annast innkaup fyrir ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki, rannsakar sameiginlegar þarfir á vörum og þjónustu og beitir sér fyrir samræmdum innkaupum til þarfa ríkisins. Stofnunin lætur í té aðstoð og leiðbeiningar um útboð og innkaup eftir því sem þörf krefur.
Komi upp ágreiningur um ákvörðun við val á tilboðum milli miðlægrar innkaupastofnunar sem umsjónaraðila útboðs og kaupanda er heimilt að vísa ágreiningnum til fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Miðlæg innkaupastofnun gerir rammasamninga fyrir hönd ríkisins og annast útboð og önnur innkaupaferli sem fram fara á vegum ríkisstofnana vegna innkaupa sem eru yfir viðmiðunarfjárhæðum skv. 10. gr. reglugerðar þessarar. Fjármála- og efnahagsráðuneytið getur þó heimilað einstökum ríkisstofnunum að annast eigin innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2025/2487 frá 2. desember 2025 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/81/ESB að því er varðar viðmiðunarfjárhæðir vegna vöru-, þjónustu- og verksamninga.
Reglugerðin er sett með heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 4. maí 2026.
F. h. r.
Jón Gunnar Vilhelmsson.
Þorsteinn Júlíus Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 19. maí 2026