Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

49/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1044/2012, um bann við línuveiðum á norðanverðum Faxaflóa. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðbirgða svohljóðandi:

Þrátt fyrir 1. mgr. 1. gr. eru allar línuveiðar bannaðar á svæði í norðanverðum Faxaflóa til og með 15. febrúar 2015, sem markast af línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 64°45,20´N - 23°38,10´V
  2. 64°49,00´N - 23°33,50´V
  3. 64°47,50´N - 22°45,60´V
  4. 64°46,20´N - 22°24,00´V
  5. 64°32,30´N - 22°26,40´V
  6. 64°40,60´N - 22°51,50´V

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. janúar 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica