Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
4.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/455 frá 26. febrúar 2026 um þvingunaraðgerðir í því skyni að berjast gegn hryðjuverkastarfsemi, um niðurfellingu á 2., 3. og 3. gr. a í sameiginlegri afstöðu 2001/931/SSUÖ um beitingu sértækra ráðstafana í baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi og um niðurfellingu ákvörðunar (SSUÖ) 2025/1577 og ákvörðunar (SSUÖ) 2026/421, sbr. fylgiskjal 4.5.
5.9 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/456 frá 26. febrúar 2026 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2580/2001 um sérstakar þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum og rekstrareiningum í því skyni að berjast gegn hryðjuverkastarfsemi og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2025/1578 og framkvæmdarreglugerð (ESB) 2026/420, sbr. fylgiskjal 5.9.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 20. apríl 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 6. maí 2026