447/2025
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.
1. gr.
Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1028 frá 20. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar skilgreiningu á flóknum, vélknúnum loftförum og um leiðréttingu þeirrar reglugerðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 297/2024 frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 20. febrúar 2025, bls. 1040-1044.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 72. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 8. apríl 2025.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.