Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Ógild reglugerð

44/2003

Reglugerð um upplýsingaskyldu í viðskiptum með notuð ökutæki.

I. KAFLI Gildissvið.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til lágmarksupplýsingaskyldu í viðskiptum með notuð ökutæki sem fram fara með milligöngu bifreiðasala, samkvæmt lögum nr. 28/1998, um verslunaratvinnu, ásamt síðari breytingum, sbr. einkum IV. kafla laganna, um sölu notaðra ökutækja.

II. KAFLI Almennar starfsskyldur bifreiðasala.

2. gr.

Bifreiðasali skal leysa störf sín af hendi svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða.

Bifreiðasali skal gæta þess að viðskiptamenn hans njóti jafnræðis um upplýsingar, verð og önnur viðskiptakjör, svo og þess að aðila séu eigi settir ólögmætir, ósanngjarnir eða óeðlilegir skilmálar í samningum.

Bifreiðasali ber jafnframt ábyrgð á verkum starfsmanna sinna við sölu ökutækja sem hefði hann sjálfur annast þau.

3. gr.

Bifreiðasali skal annast um að endanlega sé gengið frá kaupsamningi, afsali og öðrum skjölum vegna viðskipta með ökutæki á hans vegum og skal geta þess í skjölunum, þar á meðal í kauptilboðum, kaupsamningum, afsölum og skuldabréfum, hver samið hafi og greina nafn hans svo að eigi verði um villst.

Bifreiðasali skal ábyrgjast að tilkynning um eigendaskipti á ökutæki sé send ökutækjaskrá án tafar.

III. KAFLI Skyldur bifreiðasala vegna ástands ökutækis.

4. gr.

Bifreiðasali skal afla upplýsinga, sem staðfestar skulu skriflega af seljanda, um hve mikið skráningarskyldu ökutæki hefur verið ekið og um ástand þess. Einnig skal hann afla skriflega annarra þeirra upplýsinga sem kaupanda eru nauðsynlegar vegna kaupanna. Bifreiðasali skal staðfesta að seljandi hafi gefið fullnægjandi ástandslýsingu á ökutækinu, sbr. viðauka I. Gögn þessi skal bifreiðasali varðveita í eitt ár frá söludegi viðkomandi ökutækis.

Hafi bifreiðasali ástæðu til að ætla að ástandi ökutækis sé ábótavant ber honum að vekja athygli kaupanda á þeim annmarka.

5. gr.

Bifreiðasali skal áður en gengið er frá afsali notaðs ökutækis, greina kaupanda með sannanlegum hætti frá þeim rétti hans að láta óháðan aðila meta ástand ökutækis, svo sem faggilta skoðunarstofu eða faggilt skoðunarverkstæði.

IV. KAFLI Gögn sem nota skal og fylgja skulu við sölu.

6. gr.

Við kaup og sölu á notuðu ökutæki skal nota kaupsamnings- og afsalseyðublað sem er í samræmi við þær kröfur sem fram koma í viðauka II.

7. gr.

Við sölu skulu eftirfarandi gögn liggja fyrir:

  1. Vottorð úr ökutækjaskrá sem sýnir ótvírætt að seljandi sé eigandi þess ökutækis sem selt er eða hafi umboð til sölunnar.
  2. Skrá yfir fyrri eigendur með sannanlegum hætti.
  3. Upplýsingar um hugsanlegan tjónaferil ökutækisins með sannanlegum hætti. Þar á meðal ferilskrá um framkvæmd viðgerðar á ökutæki sem lent hefur í tjóni.
  4. Hvort veðbönd hvíli á ökutækinu.
  5. Skriflegar upplýsingar seljanda skv. 1. mgr. 4. gr. sem fylgja skulu afsali.

V. KAFLI Leyfisbréf, þóknun og upplýsingar.

8. gr.

Bifreiðasali skal láta leyfisbréf sitt vegna starfseminnar liggja frammi á starfsstöð sinni. Einnig skal hann með áberandi hætti vekja athygli á gjaldskrá fyrir söluþóknun, þar á meðal þegar um skipti á ökutækjum er að ræða.

Bifreiðasali skal vekja athygli viðskiptamanns síns á upplýsingum um hvert hann geti leitað um aðstoð ef upp koma vandamál vegna kaupa eða sölu á notuðu ökutæki.

VI. KAFLI Brottfall leyfis, gildistaka o.fl.

9. gr.

Um brottfall leyfis bifreiðasala fer eftir ákvæðum 19. gr. laga nr. 28/1998, um verslunaratvinnu.

10. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum samkvæmt lögum um verslunaratvinnu, nr. 28/1998 með síðari breytingum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í lögum nr. 28/1998 um verslunaratvinnu, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 654/1997, um upplýsingaskyldu í viðskiptum með notuð ökutæki.

Viðskiptaráðuneytinu, 15. janúar 2003.

Valgerður Sverrisdóttir.

Kristján Skarphéðinsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.