Dómsmálaráðuneyti

436/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, nr. 148/2000.

1. gr.

1. og 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Verð hlutamiða í hvorri flokkaröð skal vera 25.200 kr. ef keyptur er miði sem gildir í öllum 12 flokkum happdrættisársins sem er frá 1. maí til 30. apríl ár hvert.

Verð miða fyrir hvern flokk er 2.100 kr.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í lögum um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjó­manna, nr. 16/1973, öðlast gildi 1. maí 2025.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 2. apríl 2025.

 

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.

Bryndís Helgadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica