Heilbrigðisráðuneyti

409/2026

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1111/2020, um heilbrigðisumdæmi og hlutverk, starfsemi og þjónustu heilsugæslustöðva, heilbrigðisstofnana og sjúkrahúsa.

1. gr.

Á eftir e-lið 1. mgr. 19. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Heyrnar- og talmeinaþjónusta, sem felur í sér m.a. heyrnarmælingar, greiningu og meðferð á heyrnar- og talmeinum.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 38. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, öðlast gildi 1. maí 2026.

Heilbrigðisráðuneytinu, 22. apríl 2026.

Alma D. Möller.

Guðlaug Einarsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 29. apríl 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica