Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

40/2018

Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um starfsemi lánshæfismatsfyrirtækja.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um starfsemi lánshæfismatsfyrirtækja sem starfa samkvæmt lögum nr. 50/2017 um lánshæfismatsfyrirtæki.

2. gr. Innleiðing reglugerða.

Eftirfarandi reglugerðir Evrópusambandsins um starfsemi lánshæfismatsfyrirtækja skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 205/2016 frá 30. september 2016, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 13 frá 23. febrúar 2017, bls. 57-62:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 272/2012 frá 7. febrúar 2012 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1060/2009 að því er varðar gjöld sem Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin innheimtir af lánshæfismatsfyrirtækjum, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57 frá 13. október 2016, bls. 742-746.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 446/2012 frá 21. mars 2012 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1060/2009 um tæknilega eftirlitsstaðla um inntak og form reglubundinna skýrslna með matsgögnum sem lánshæfismatsfyrirtækjum ber að leggja fram til Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57 frá 13. október 2016, bls. 747-758.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 447/2012 frá 21. mars 2012 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1060/2009 um lánshæfismatsfyrirtæki þar sem mælt er fyrir um tæknilega eftirlitsstaðla við mat á því hvort aðferð við lánshæfismat uppfylli skilyrði, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57 frá 13. október 2016, bls. 759-761.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 448/2012 frá 21. mars 2012 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1060/2009 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um framsetningu upplýsinganna sem lánshæfismatsfyrirtæki skulu gera aðgengilegar í miðlægu gagnasafni sem komið er á fót af Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnuninni, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57 frá 13. október 2016, bls. 762-776.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 449/2012 frá 21. mars 2012 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1060/2009 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um skráningarupplýsingar og vottun lánshæfismatsfyrirtækja, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57 frá 13. október 2016, bls. 781-801.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 946/2012 frá 12. júlí 2012 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1060/2009 að því er varðar starfsreglur um sektir sem Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin leggur á lánshæfismatsfyrirtæki, þ.m.t. reglur um rétt til varnar og tímabundin ákvæði, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57 frá 13. október 2016, bls. 777-780.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 50/2017, um lánshæfismatsfyrirtæki, og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 9. janúar 2018.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Erna Hjaltested.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.