Á eftir 1. málsl. 3. tölul. 6. gr. reglugerðarinnar kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þrátt fyrir framangreint er nægilegt að í samningi sé gert ráð fyrir að umsjónarmaður þjónusti lyftu tvisvar á ári þegar um er að ræða hjólastólalyftu.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 3. gr. og 47. og 48. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, í samráði við forstjóra Vinnueftirlits ríkisins sem og að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins, öðlast þegar gildi.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 8. apríl 2026.
Ragnar Þór Ingólfsson
félags- og húsnæðismálaráðherra.
Bjarnheiður Gautadóttir.
B deild - Útgáfudagur: 22. apríl 2026