Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

37/1993

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 37/1989, um greiðslu skv. 38. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda.

1. gr.

3.mgr. orðist svo:

Maður skal skila greiðslu skv. reglugerð þessari ásamt skilagrein í því umdæmi þar sem hann á lögheimili. Skil skal gera til gjaldheimtna þar sem þær eru starfandi en annars staðar til sýslumanns.

Eftirtaldir aðilar eru innheimtumen staðgreiðslu og taka við staðgreiðslufé og skilagreinum:

A. Gjaldheimtur:

Gjaldheimtan í Reykjavík.

Gjaldheimtan í Mosfellsbæ.

Gjaldheimtan á Seltjarnarnesi.

Gjaldheimtan, Garðabæ.

Gjaldheimtan Suðurnesja, Njarðvík.

B. Sýslumenn:

Sýslumaðurinn á Akranesi.

Sýslumaðurinn í Borgarnesi.

Sýslumaðurinn í Stykkishólmi.

Sýslumaðurinn í Búðardal.

Sýslumaðurinn á Patreksfirði.

Sýslumaðurinn í Bolungarvík.

Sýslumaðurinn á Ísafirði.

Sýslumaðurinn á Hólmavík.

Sýslumaðurinn á Blönduósi.

Sýslumaðurinn í Vík.

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum.

Sýslumaðurinn á Hvolsvelli.

Sýslumaðurinn á Selfossi.

Sýslumaðurinn í Hafnarfirði.

Sýslumaðurinn í Kópavogi.

Sýslumaðurinn á Sauðarkróki.

Sýslumaðurinn á Siglufirði.

Sýslumaðurinn á Ólafsfirði.

Sýslumaðurinn á Akureyri.

Sýslumaðurinn á Húsavík.

Sýslumaðurinn á Seyðisfirði.

Sýslumaðurinn á Neskaupstað.

Sýslumaðurinn á Eskifirði.

Sýslumaðurinn á Höfn.

Reglugerð þessi sem sett er skv. heimild í 41.gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum og heimild í 119. gr. laga nr 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytið, 22. janúar 1993.

F.h.r.

Indriði H. Þorláksson.

Snorri Olsen.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.