Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

333/1995

Reglugerð um Lífeðlisfræðistofnun Háskóla Íslands.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Lífeðlisfræðistofnun Háskóla Íslands heyrir undir læknadeild skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 131/1990 um Háskóla Íslands.

2. gr.

Hlutverk stofnunarinnar er:

Að annast rannsóknir í lífeðlisfræði.

Að leggja til aðstöðu til verklegrar kennslu í lífeðlisfræði við Háskóla Íslands, eftir því sem kostur er og fé er veitt til.

Að sinna þeim verkefnum, sem henni kunna að vera falin til úrlausnar, enda komi greiðsla fyrir.

Að gangast fyrir ráðstefnum, námskeiðum og fyrirlestrum til kynningar á fræðilegum nýjungum og fást við hver önnur verkefni, er stuðlað geta að eflingu rannsókna og kennslu á sviði lífeðlisfræði í skólum landsins.

Að veita stúdentum þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum með því að gefa þeim kost á að vinna rannsóknarstörf á vegum stofnunarinnar, eftir því sem kostur er og fé er veitt til.

Að veita rannsóknaraðstöðu fyrir lausráðna kennara í lífeðlisfræði, eftir því sem kostur er og fé er veitt til.

Að hafa samvinnu við aðrar rannsóknarstofnanir, er starfa á skyldum sviðum.

Að annast útgáfustarfsemi.

3. gr.

Starfslið stofnunarinnar er:

Prófessorar, dósentar, lektorar, fastráðnir stundakennarar og aðjúnktar í lífeðlisfræði við Háskóla Íslands. Auk þeirra er heimilt, að fastir kennarar eða sérfræðingar í skyldum greinum starfi við stofnunina.

Gistiprófessorar, sérfræðingar, stundakennarar og styrkþegar, sem sinna tímabundnum verkefnum eða kennslu í lífeðlisfræði, eftir því sem aðstæður leyfa og stjórn stofnunarinnar heimilar.

Sérfræðingar, aðstoðarmenn og stúdentar, sem stjórn stofnunarinnar veitir starfsaðstöðu til rannsóknarverkefna, og aðrir starfsmenn.

4. gr.

Stjórn stofnunarinnar er skipuð föstum kennurum í lífeðlisfræði sbr. 3. gr. lið a; einum úr hópi annarra starfsmanna sbr. 3. gr. lið c, skipuðum til tveggja ára í senn; svo og einum stúdent í lífeðlisfræði tilnefndum sameiginlega af stúdentafélögum þeirra stúdenta er stunda nám í lífeðlisfræði við þær deildir og námsbrautir er hafa fasta kennarastöðu í lífeðlisfræði, til eins árs. Stjórnin kýs sér formann úr hópi fastra kennara sbr. 3. gr. lið a til tveggja ára í senn, og er hann jafnframt forstöðumaður stofnunarinnar. Hann skal hafa umsjón með framkvæmd á ákvörðunum stjórnarinnar og hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar. Ráða skal framkvæmdastjóra þegar heimild er til í fjárlögum, og setur stjórnin honum erindisbréf. Stjórn stofnunarinnar er heimilt að skipta stofnuninni í deildir eftir því sem þörf er fyrir. Verði stofnuninni skipt í deildir, skal fyrir hverri þeirra vera deildarstjóri sem hefur á höndum stjórn rannsókna og stendur fyrir daglegum rekstri undir yfirstjórn forstöðumanns stofnunarinnar og stjórnar hennar. Deildarstjóri skal valinn af stjórn stofnunarinnar úr hópi fastra starfsmanna sbr. 3. gr. lið a. Stjórnin fjallar um öll sameiginleg málefni stofnunarinnar; hefur umsjón með fjármálum hennar, semur rekstraráætlanir og tillögur um fjárveitingar til hennar og til einstakra deilda, er þeim hefur verið komið á, og semur ársskýrslu um starfsemina. Falli atkvæði jöfn innan stjórnar ræður atkvæði formanns. Stjórnin getur skotið málum til deildarráðs til samráðs eða úrskurðar. Verði þá ágreiningur, má skjóta honum til deildarfundar og háskólaráðs.

5. gr.

Stjórnarformaður, deildarstjórar og annað starfslið skulu fá greidda þóknun eftir gildandi reglum innan háskólans, eða eftir nánari ákvörðun. Háskólinn sér starfsliði fyrir vinnuaðstöðu.

6. gr.

Rekstur stofnunarinnar er greiddur af ríkisfé skv. því sem veitt er í fjárlögum. Aðrar tekjur stofnunarinnar eru: Styrkir til einstakra verkefna.

Greiðslur fyrir umbeðin verkefni.

Tekjur af útgáfustarfsemi.

Aðrar tekjur, t.d. gjafir.

Fjármál stofnunarinnar heyra endanlega undir rektor og háskólaritara, sbr. 3., 4. og 5. mgr. 2. gr. laga nr. 131/1990, um Háskóla Íslands. Skal reikningshaldið vera hluti af heildarreikningi háskólans.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 9. gr. laga nr. 131/1990, um Háskóla Íslands, sbr. háskólareglugerð nr. 98/1993, 65. gr., og öðlast þegar gildi.

Menntamálaráðuneytið, 30. maí 1995.

Björn Bjarnason.

Guðríður Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.