Tafla í 14. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
| Fjöldi heimilismanna | Frítekjumörk m.v. árstekjur |
| 1 | 6.365.773 kr. |
| 2 | 8.466.478 kr. |
| 3 | 9.866.948 kr. |
| 4 | 10.694.499 kr. |
| 5 | 11.585.707 kr. |
| 6 eða fleiri | 12.476.915 kr. |
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 17. gr. og 4. tölul. 1. mgr., sbr. 2. mgr. 30. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, öðlast þegar gildi og skal gilda frá og með 1. janúar 2026 um húsnæðisbætur sem greiddar eru vegna leigu íbúðarhúsnæðis frá og með þeim degi. Mismunur á þeim húsnæðisbótum sem umsækjandi á rétt til samkvæmt breyttum frítekjumörkum skv. 1. gr. og þeim húsnæðisbótum sem greiddar hafa verið vegna leigu íbúðarhúsnæðis í janúar og febrúar skal greiðast umsækjanda eigi síðar en 30. apríl 2026.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 17. mars 2026.
Ragnar Þór Ingólfsson
félags- og húsnæðismálaráðherra.
Hildur Dungal.
B deild - Útgáfudagur: 1. apríl 2026