Utanríkisráðuneyti

324/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð um aðgerðir gegn hryðjuverkastarfsemi, nr. 448/2014.

1. gr.Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

1.17   Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/2398 frá 24. nóvember 2025 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2016/1693 um þvingunaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu (Da'esh) og Al-Qaida-samtökunum og einstaklingum, hópum, fyrirtækjum og rekstrareiningum sem þeim tengjast, sbr. fylgiskjal 1.17.

3.11   Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/2397 frá 24. nóvember 2025 um breytingar á reglugerð (ESB) 2016/1686 um viðbótarþvingunaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu (Da'esh) og Al-Qaida-samtökunum og einstaklingum, lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem þeim tengjast, sbr. fylgiskjal 3.10.

2. gr.Frysting fjármuna.

5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Skylda til að frysta án tafar fjármuni og efnahagslegan auð samkvæmt reglugerð þessari á við um: a) aðila sem tilgreindur er í listum samkvæmt reglugerð þessari þegar kveðið er á um frystingarskyldu og b) aðila sem tilgreindur er á grundvelli ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1373 (2001), ef réttmætur grundvöllur eða réttmætar ástæður eru til að gruna eða ætla að viðkomandi aðili eða rekstrareining sé hryðjuverkamaður, einhver sem fjármagnar hryðjuverkastarfsemi eða hryðjuverkasamtök.

3. gr.Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 16. mars 2026.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

B deild - Útgáfudagur: 1. apríl 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica