Eftirfarandi töluliður skal bætast við 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/2469 frá 4. desember 2025 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/1999 um þvingunaraðgerðir gegn alvarlegum mannréttindabrotum, sbr. fylgiskjal 1.4.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 5. mars 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 1. apríl 2026