Dómsmálaráðuneyti

322/2026

Reglugerð um flug og siglingar Landhelgisgæslu Íslands utan lögbundinna og samningsbundinna verkefna.

1. gr. Gildissvið og markmið.

Reglur þessar gilda um nýtingu loftfara og skipa sem Landhelgisgæsla Íslands á eða leigir, í verkefnum sem ekki falla undir lögbundin eða samningsbundin verkefni, sbr. 4. og 5. gr. laga um Landhelgisgæslu Íslands, nr. 52/2006.

Markmið reglnanna er að tryggja gagnsæi og ábyrga nýtingu tækja Landhelgisgæslunnar.

2. gr. Heimil notkun.

Heimilt er að nýta loftför og skip Landhelgisgæslunnar í tengslum við opinberar skyldur eða verkefni stjórnvalda, svo sem vegna óvæntra atburða sem krefjast skjótra og sérstakra flutninga, formlegra athafna sem krefjast sérstakra flutninga og ekki er hægt að mæta með öðrum hætti, alþjóðasamstarfs, forvarnastarfs, fræðslu og kynningar á björgunartækjum ríkisins og góðgerðarverkefna. Skilyrði er einnig að hagkvæmni sé gætt og að nýtingin hafi ekki neikvæð áhrif á getu stofnunarinnar til að sinna lögbundnu eða samningsbundnu hlutverki sínu.

Landhelgisgæslan skal hverju sinni leggja mat á hvort skilyrði 1. mgr. séu uppfyllt og halda skrá yfir allar samþykktar beiðnir. Þá skal Landhelgisgæslan jafnframt hverju sinni tilkynna dómsmálaráðuneyti um slíkar ferðir og greina frá tilgangi þeirra, nauðsyn og áhrifum á getu stofnunarinnar til að sinna lögbundnu og samningsbundnu hlutverki sínu, sbr. 4. og 5. gr. laga nr. 52/2006.

Öll einkanot af loftförum og skipum Landhelgisgæslunnar eru óheimil. Með einkanotkun er átt við hvers kyns notkun sem ekki tengist með beinum hætti opinberum skyldum eða verkefnum stjórnvalda.

3. gr. Lagaheimild og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 28. gr. laga um Landhelgisgæslu Íslands, nr. 52/2006, öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 12. mars 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Bryndís Helgadóttir.

B deild - Útgáfudagur: 1. apríl 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica