Reglugerð þessi gildir um álagningu dagsekta á skráningarskyldan aðila samkvæmt lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019. Skráningarskyldir aðilar eru þeir sem falla undir gildissvið laganna skv. 2. gr. þeirra.
Ríkisskattstjóri getur lagt dagsektir á skráningarskyldan aðila sem fylgir ekki lögum um skráningu raunverulegra eigenda, eða reglugerða settra á grundvelli þeirra, veiti hann ekki umbeðnar upplýsingar eða sinni ekki kröfum um úrbætur.
Komi í ljós að skráningarskyldur aðili fylgir ekki lögum um skráningu raunverulegra eigenda, eða reglugerðum settum á grundvelli þeirra, skal ríkisskattstjóri senda tilkynningu um fyrirhugaða álagningu dagsekta og gera um leið kröfu um úrbætur.
Tilkynninguna skal birta í stafrænu pósthólfi skráningarskylds aðila, sbr. lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, nr. 105/2021, og telst það ávallt nægileg birting. Þegar tilkynningin er aðgengileg í stafrænu pósthólfi telst hún birt skráningarskyldum aðila.
Veita skal þeim aðila sem krafa um úrbætur, og fyrirhuguð álagning dagsekta, beinist að þriggja vikna frest frá dagsetningu tilkynningar til að veita umbeðnar upplýsingar og gögn, sinna kröfum um úrbætur og/eða koma að skriflegum andmælum áður en ríkisskattstjóri úrskurðar skv. 3. gr.
Umbeðnar upplýsingar og gögn eru þau sem skráningarskyldum aðilum ber að skila til ríkisskattstjóra innan tilskilins frests samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða samkvæmt kröfu ríkisskattstjóra. Úrbótum telst lokið þegar fullnægjandi upplýsingar og gögn hafa borist að mati ríkisskattstjóra.
Ríkisskattstjóri getur lagt dagsektir á skráningarskyldan aðila veiti hann ekki umbeðnar upplýsingar og gögn eða sinnir ekki kröfum um úrbætur innan frests skv. 3. mgr. 2. gr.
Ríkisskattstjóri leggur á dagsektir með úrskurði og skal í honum vísa til þeirra réttarreglna sem úrskurðurinn byggist á.
Dagsektir leggjast á frá dagsetningu úrskurðar og falla á fyrir hvern dag sem líður þar til fullnægjandi upplýsingar og/eða gögn hafa borist ríkisskattstjóra.
Úrskurð skal birta í stafrænu pósthólfi skráningarskylds aðila, sbr. lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, og telst það ávallt nægileg birting. Þegar úrskurðurinn er aðgengilegur í stafrænu pósthólfi telst hann birtur skráningarskyldum aðila.
Dagsektir geta numið frá 10.000 kr. til 500.000 kr. á dag og er heimilt að ákveða þær sem hlutfall af tilteknum stærðum í rekstri skráningarskylds aðila.
Við ákvörðun um fjárhæð dagsekta er heimilt að taka tillit til eðlis vanrækslu eða brots og fjárhagslegs styrkleika viðkomandi aðila.
Hækka skal dagsektir hjá aðilum sem greiða dagsektir og veita ekki umbeðnar upplýsingar og gögn eða sinna ekki kröfum um úrbætur. Við ákvörðun um hækkun dagsekta skal fylgja 2. og 3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í e-lið 1. mgr. 19. gr. laga um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 12. mars 2026.
F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 26. mars 2026