Atvinnuvegaráðuneyti

267/2026

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 186/2020 um tímabundið bann við veiðum með fiskibotnvörpu á veiðisvæðum humars.

1. gr.

1. málsliður 1. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Allar veiðar með fiskibotnvörpu eru bannaðar á eftirfarandi veiðisvæðum humars frá og með 16. mars 2024 til og með 15. mars 2028.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 8. og 9. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 12. mars 2026.

Hanna Katrín Friðriksson.

Kolbeinn Árnason.

B deild - Útgáfudagur: 20. mars 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica