Atvinnuvegaráðuneyti

241/2026

Reglugerð um (13.) breytingu á reglugerð nr. 507/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 13. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/194 frá 28. janúar 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum inn í Sambandið og um framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og (EB) nr. 178/2002.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/194 er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 3/2026.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. febrúar 2026.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Svava Pétursdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 13. mars 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica