236/2026
Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 424/2015 um gildistöku ákvarðana og framseldra reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um röðun tiltekinna byggingarvara í flokka eftir nothæfi með tilliti til viðbragða við bruna, brunatæknilega flokkun á tilteknum vörum án þess að brunaprófun þurfi að fara fram, og aðferð við staðfestingu á samræmi byggingarvara skv. 60. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 305/2011 um byggingarvörur.
1. gr.
Við 2. tölul. 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, i-liður, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1399 frá 10. nóvember 2023 um skilyrði fyrir flokkun, án prófunar, þilja og klæðninga úr gegnheilum viði með tilliti til viðbragða við bruna og um breytingu á ákvörðun 2006/213/EB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 10/2025, 20. febrúar 2025, bls. 948-951.
2. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 29. tölul., svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1399 frá 10. nóvember 2023 um skilyrði fyrir flokkun, án prófunar, þilja og klæðninga úr gegnheilum viði með tilliti til viðbragða við bruna og um breytingu á ákvörðun 2006/213/EB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 10/2025, 20. febrúar 2025, bls. 948-951.
3. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 7. gr. laga um byggingarvörur, nr. 114/2014, öðlast þegar gildi.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 23. febrúar 2026.
Ragnar Þór Ingólfsson
félags- og húsnæðismálaráðherra.
B deild - Útgáfudagur: 10. mars 2026