Heilbrigðisráðuneyti

207/2026

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 466/2012, um færni- og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma.

1. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

Heimilt er að flytja innritaðan einstakling af sjúkrahúsi, sem lokið hefur meðferð og bíður rýmis á dvalar- eða hjúkrunarheimili, á aðra stofnun sem fullnægt getur þjónustuþörfum viðkomandi.

Lýsi sjúkrahús yfir hættuástandi vegna álags og skorts á legurými, sem m.a. stafar af útskriftarvanda, er skylt að flytja innritaðan einstakling sem lokið hefur meðferð og bíður rýmis á dvalar- eða hjúkrunarheimili, af sjúkrahúsinu á aðra stofnun sem staðsett er innan 50 km frá lögheimili viðkomandi og sem fullnægt getur þjónustuþörfum viðkomandi.

Sé einstaklingur í dvöl skv. 2. og 3. mgr., kemur það ekki niður á möguleikum hans á rými á því dvalar- eða hjúkrunarheimili sem hann óskar eftir og skal hann njóta sama forgangs og áður í það rými.

2. gr.

2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. mgr. 15. gr. laga, um málefni aldraðra, nr. 125/1999, og 31. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 2. mars 2026.

Alma Möller.

Guðlaug Einarsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 3. mars 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica