Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2790 frá 14. desember 2023 um ákvörðun virkni- og tækniforskrifta fyrir viðmótseiningu skýrslugjafar fyrir landsbundnu sameiginlegu gáttirnar fyrir siglingar. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 313/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 658-667.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. og 3. mgr. 16. gr. c. og 1. og 2. mgr. 17. gr. laga um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 16. febrúar 2026.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Katrín Pálsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 2. mars 2026