Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2025, frá 24. október 2025 öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/179 frá 31. janúar 2025 um söfnun og sendingu sameindagreiningargagna innan ramma faraldsfræðilegra rannsókna á matarbornum uppkomum í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/99/EB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75 frá 27. nóvember 2025, bls. 211.
Reglugerð þessi sem er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, og hliðsjón af tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/99 öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 5. febrúar 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
Katarina Tina Nikolic.
B deild - Útgáfudagur: 27. febrúar 2026