2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Upplýsingar um aflamagn og tegundir samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. teljast ekki nákvæmar ef mismunur á magni landaðs afla og uppgefins afla í veiðiferð nemur meira en 10%.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. mgr. 9. gr. laga um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 19. febrúar 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
Kolbeinn Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 27. febrúar 2026