Markmið þessarar reglugerðar er að mæla fyrir um skilyrði þess að fá útgefið skipstjórnar- og vélstjórnarskírteini til starfa á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar til samræmis við ákvæði laga um áhafnir skipa nr. 82/2022.
Menntun áhafna björgunarskipa skal vera í samræmi við samræmd viðmið um menntun og þjálfun áhafna björgunarskipa útgefnar af Alþjóðasjóbjörgunarsamtökunum (e. The International Maritime Rescue Federation).
Reglugerð þessi gildir um áhafnir björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem eru 18 metrar og styttri að skráningarlengd og með vélarafl allt að 1350 kW, og eru að staðaldri í íslenskri efnahagslögsögu.
Rétt til að starfa á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa þeir sem fullnægja ákvæðum reglugerðar um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum nr. 944/2020.
Þeir sem ekki uppfylla ákvæði reglugerðar um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum öðlast þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. rétt til að starfa á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar enda uppfylli þeir ákvæði reglugerðar þessarar.
Þeir sem gegna stöðu skipstjórnar- og vélstjórnarmanna skulu geta framvísað gildum réttindaskírteinum útgefnum af Samgöngustofu til staðfestingar á hæfni þeirra til að gegna þeim stöðum.
Hver sá sem stjórnar björgunarskipi skal:
Hver sá sem annast vélstjórn björgunarskips skal:
Hjá björgunarbátasjóði skal a.m.k. vera einn vélstjórnarmenntaður einstaklingur sem hefur a.m.k. VSI-réttindi sem annast reglubundið eftirlit með vélbúnaði björgunarskips ef réttindaminni vélstjórnarmenn skipa áhöfn þess, nema sjóðurinn sé með gildan viðhaldssamning við viðurkennda vélsmiðju eða annan þann aðila sem réttindi hefur til að sinna viðhaldi skips, enda takmarkist farsvið björgunarskipsins við strandsiglingar, eins og þær eru skilgreindar í lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022.
Um útgáfu skírteina, gildistíma og endurnýjun skírteina fer eftir ákvæðum 4. og 7. gr. laga um áhafnir skipa nr. 82/2022 og ákvæðum reglugerðar um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg gefur út þjálfunarbók fyrir sérhvern skipverja björgunarskips. Í sjóferðabók skal færa inn sjóferðir viðkomandi skipverja á björgunarskipi, störf viðkomandi í hverri ferð og eðli ferðar. Skipverji færir sönnur um starfstíma sinn í áhöfn björgunarskips með rétt útfylltri þjálfunarbók.
Um brot á reglugerð þessari fer eftir ákvæðum 34. gr. laga um áhafnir skipa nr. 82/2022.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. mgr. 37. gr. laga um áhafnir skipa nr. 82/2022, og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á björgunarskipum, nr. 555/2008.
Innviðaráðuneytinu, 30. janúar 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 13. febrúar 2026