Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

11/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1200/2016, um húsnæðisbætur, með síðari breytingum.

1. gr.

Tafla í 14. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Fjöldi heimilismanna Frítekjumörk miðað við árstekjur
1 4.752.707 kr.
2 6.285.838 kr.
3 7.359.030 kr.
4 eða fleiri 7.972.283 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 17. gr. og 4. tölul. 1. mgr., sbr. 2. mgr. 30. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, öðlaðist gildi 1. janúar 2022 og gildir um húsnæðisbætur sem greiddar eru vegna leigu íbúðarhúsnæðis frá og með þeim degi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. janúar 2022.

Sigurður Ingi Jóhannsson
innviðaráðherra.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.