7/2026
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 468/2014, um framkvæmdasjóð aldraðra.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
- E-liður orðast svo:
Að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar og endurbætur á húsnæði sem tilgreint er í a-d-liðum. Framlag vegna breytinga og endurbóta má nema allt að 50% kostnaðar vegna hjúkrunarheimila og hjúkrunarrýma, þjónustumiðstöðva aldraðra, dagdvala, dvalarrýma og sambýla enda sé kostnaður innan eðlilegra marka.
- F-liður orðast svo:
Stærri viðhaldsverkefna vegna húsnæðis sem tilgreint er í b-d-liðum. Minniháttar viðhald greiðist samkvæmt reglugerð ráðherra um daggjöld stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 12. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, öðlast þegar gildi.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 8. janúar 2026.
B deild - Útgáfudagur: 9. janúar 2026