Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

821/2007

Reglugerð um breytingu á reglugerð um ættleiðingar nr. 238 28. febrúar 2005.

1. gr.

Í stað orðsins "ráðuneytið" í 2. gr. reglugerðarinnar kemur: sýslumaður.

2. gr.

Í stað orðsins "ráðuneytisins" í 1. málsl. 3. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: sýslu­manns.

3. gr.

4. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

  1. Í stað orðsins "ráðuneytið" í fyrri málsl. 1. mgr. og 3. mgr. kemur: sýslumaður.
  2. Í stað orðsins "það" í 3. mgr. kemur: hann.

4. gr.

Í stað orðsins "ráðuneytið" í seinni málsl. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: sýslumaður.

5. gr.

Í stað orðsins "ráðuneytið" í 6. gr. reglugerðarinnar kemur: sýslumaður.

6. gr.

Í stað orðsins "ráðuneytisins" í 18. gr. reglugerðarinnar kemur: sýslumanns.

7. gr.

Í stað orðsins "ráðuneytið" í 5. málsl. 2. mgr. 19. gr. reglugerðarinnar kemur: sýslu­maður.

8. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 41. gr. laga um ættleiðingar, nr. 130 21. desember 1999, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 30. ágúst 2007.

Björn Bjarnason.

Haukur Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica