Samgönguráðuneyti

1046/2007

Reglugerð um skipulag og samsetningu kærunefndar Flugöryggisstofnunar Evrópu.

1. gr.

Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða reglugerð framkvæmdastjórnarinnar um skipulag og samsetningu kærunefndar Flugöryggisstofnunar Evrópu eins og nánar greinir í 2. gr., sbr. reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu, nr. 612/2005.

2. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 104/2004 frá 22. janúar 2004 um setningu reglna um skipulag og samsetningu kærunefndar Flugöryggisstofnunar Evrópu með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 15/2005 frá 8. febrúar 2008. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loft­ferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 22. október 2007.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica