Samgönguráðuneyti

302/1972

Hafnarreglugerð fyrir Höfn við Bakkafjörð. - Brottfallin

HAFNARREGLUGERÐ

fyrir Höfn við Bakkafjörð.

 

I. KAFLI

Takmörk hafnarinnar.

1. gr.

Höfnin takmarkast af beinni línu, er hugsast dregin úr Svartanesi í Skarfatanga.

 

II. KAFLI

Stjórn hafnarinnar og rekstur.

2. gr.

Sveitarstjórn hefur á hendi stjórn og rekstur hafnarinnar undir yfirumsjón samgönguráðuneytisins.

Sveitarstjórn kýs á fyrsta fundi sínum 5 manna hafnarstjórn og jafnmarga til vara og skipar formann hennar og varaformann, sem boðar til funda i hafnarstjórn og stýrir þeim.

Kjörtímabil hafnarstjórnar skal vera hið sama og sveitarstjórnar. Hafnarvörður, eða sá sem, sér um daglegan rekstur og eftirlit hafnarinnar, á sæti á fundum hafnarstjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt.

 

3. gr.

Til aðstoðar hafnarstjóra við daglegan rekstur hafnarinnar, eftirlit og umsjón, skulu vera svo margir starfsmenn, sem þurfa þykir. Hreppsnefnd skipar hafnarstjóra, hafnarvörð eða umsjónarmann, og aðra fasta starfsmenn eftir tillögum hafnar­stjórnar og setur þeim erindisbréf, þar sem, m. a. verksvið þeirra er ákveðið.

Daglegan rekstur, framkvæmdir, eftirlit og umsjón annast hafnarvörður i sam­ráði við hafnarstjórn.

 

III. KAFLI

Um almenna reglu á höfninni og hafnarsvæðinu.

4. gr.

Skip telst í reglugerð þessari hvert fljótandi far.

 

5. gr.

Sérhver skipstjóri, sem á skipi sínu kemur á höfnina, að bryggju eða að hafnar­bakka, skal gæta fyllsta öryggis í allri umferð á höfninni. Hann skal vera kunnugur ákvæðum reglugerðar hafnarinnar, svo og skipshöfn hans öll. Eintak af hafnar­reglugerðum fæst afhent í skrifstofu hafnarinnar án endurgjalds og skal það vera í sérhverju skipi, er liggur á höfninni eða við bryggju eða hafnargarð.

 

6. gr.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á höfninni o~ á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða boði hans og banni, svo og þeirra manna, er settir eru til að gæta


reglu. Þyki einhverjum sér óréttur ger af starfsmönnum hafnarinnar getur hann kært fyrir hafnarstjórn"en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

Starfsmenn hafnarinnar skulu gætu allrar kurteisi í starfi sínu.

 

7. gr.

Þeim, sem ekkert lögmætt erindi eiga, er óheimilt að dvelja á landi hafnarinnar, tálmi þeir með því fermingu eða affermingu eða önnur störf, sem þar eru unnin.      Banna má ónauðsynlegan akstur hvers kyns ökutækja um bryggjur og hafnarbakka.       

 

8. gr.

Skylt er að gæta ýtrustu varúðar i meðferð opins elds og óbyrgðra ljósa i skip­um á höfninni, sem flytja eldfim efni og efni, sem sprengihætta stafar af. Hið sama gildir um tóbaksreykingar og ber, ef þurfa þykir, að banns þær á þeim stöðum, þar sem um eldhættu eða sprengihættu gæti verið að ræða. (sjá 22. gr.).

 

9. gr.

Ekki má kasta í höfnina, hvorki frá skipum né frá hafnarbakka eða bryggjum, kjölfestu, ösku, dauðum fiski, fiskúrgangi, veiðarfærum, trossum, vírum, matar­leifum, umbúðum eða neins konar rusli. Allt þess háttar skal flutt á þann stað, sem hafnarvörður vísar til.

Ekki má láta olíur eða vatn mengað olíu renna í höfnina. Þegar olía er látin í skip eða losuð úr því, skal þess gætt að ekkert af henni renni í höfnina á hafnar­mannvirki eða á þilfar skipsins.

 

IV. KAFLI

Um legu skipa í höfninni og afgreiðslu þeirra.

10. gr.

Þegar skip leitar hafnar, skal skipstjóri eða umboðsmaður skipsins tafarlaust snúa sér til hafnarstjóra, er vísar honum .á legustað fyrir skipið.

Leggist skipið við hafnarmannvirki, skulu landfestar bundnar, þar sem starfs­menn hafnarinnar segja til um.

 

11. gr.

Ef sjúkdómur er á skipinu eða ástæða þykir til að ætla að sótthætta geti stafað af því, ber hafnarstjóra að sjá um að fylgt sé þeim reglum, sem settar eru í lögum um varnir gegn því að næmir sjúkdómar berist til Íslands.

 

12. gr.

Skip, sem ekki er verið að ferma eða afferma, eða ekki er unnið við, mega aldrei liggja þannig á höfninni að þau tálmi vinnu við önnur skip og skal skylt að hlýða boðum starfsmanna hafnarinnar um það, hvert þau skuli flutt. Ef ekki er orðið við boðum starf~manna hafnarinnar í þessum efnum er heimilt að færa skipið á kostnað eiganda.

Brottfarartíma skips skal skipstjóri tilkynna hafnaryfirvöldum með minnst t• eggja tíma fyrirvara.

 

13. gr.

Sé nauðsynlegt talið að skipum, sem fermd eru eða affermd, sé lagt hverju við hliðina á öðru, er heimilt að flytja farm þeirra skipa, er utar liggja yfir þilfar hinna. Skipshöfn og farþegum. þeirra skipa, sem utar liggja, er einnig heimil nauð­synleg umferð um þilför þeirra skipa, er nær liggja.


.

 

14. gr.

Í sérhverju skipi; sem ekki hefur leyfi hafnarvarðar til að liggja mannlaust á höfninni, skal jafnan vera starfsmönnum hafnarinnar a. m. k. 1 maður; er getur tekið víð fyrirskipunum frá og framkvæmt þær í samræmi við það, sem reglugerð þessi býður

 

15. gr.

Eigi má festa skipum víð hafnarbakka eða bryggjur nema víð festarhringa eða festarstólpa, að tilvísun hafnarvarðar. Séu landfestar úr járni, skulu þær vera klæddar þar sem þær hvíla á hafnarbakkanum eða bryggjunni. Festum skal þannig komið fyrir að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða óðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarverði þess ekki nægilega gætt, getur hann krafizt þess að bætt sé úr því tafarlaust.

Skylt er að hafa hlífar milli skips og hafnarbakka eða bryggju, óski hafnar­vörður þess.

 

18. gr.

Skip mega ekki láta vélarnar ganga af svo miklu afli að öðrum skipum eða hafnarmannvirkjum stafi af því hætta.

 

17. gr.

Ekki má krækja hökum í bryggjur eða hafnarbakka, hvorki víð þvott á þilfari né heldur, er þau hleypa burt vatni á annan hátt. Búa skal svo um með hlífum, að vatnið fari beint í höfnina.

 

18. gr.

Ef skip lendir á grynningum og sekkur, þar sem það að álíti hafnarstjórnar tálmar greiðri notkun hafnarinnar eða umferð um hafnarsvæðið, skal fjarlægja það svo fljótt sem víð verður komið. Verði dráttur á því, má hafnarvörður láta færa skipið burt á kostnað eiganda og er honum ef nauðsyn krefur, heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum.

 

19. gr.

Áður en kjölfesta er flutt á skip eða úr skipi, skal hafnarverði gert viðvart og ákveður kann þá hvar losun eða lestun kjölfestunnar fer fram.

Við losun eða lestun á kjölfestu, sandi, kolum og öðru þess háttar, er skylt að hafa nægilega tryggar hlífar á milli skipsins og hafnarbakka, bryggjunnar eða bát­anna, að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt, getur hafnarvörður stöðvað verkið, unz umbætur hafa farið fram.

Skipstjóri skal sjá um, að kjölfesta sú, sem flutt hefur verið á land úr skipi hans, sé þegar í stað flutt burt af löndunarstaðnum þangað, sem hafnarvörður vísar til.

 

20. gr.

Þegar lokið er fermingu eða affermingu skal eigandi skips láta hreinsa bryggju þá eða hafnarbakka, sem notuð hafa verið, sé þess talin þörf. Farist það fyrir, skal hafnarstjóri sjá um að það sé gert, en eigandi farms eða skips greiði þann kostnað, er af því leiðir.

 

V. KAFLI

Um skip sem lagt er í lægi.

21. gr.

Skipum má leggja i 1ægí á höfninni með sérstöku leyfi hafnarnefndar, sé það gert undir umsjón hafnarvarðar, sem ákveður legustaðinn, legufærin og fyrirkomu­lag allt, er varðar lagningu skipsins.


 

22. gr.

Meðan skip liggur mannlaust í lægi á höfninni, skal ekki sjaldnar en á eins mánaðar fresti fara út í það til að líta eftir, hvort legufæri eða annað hefur farið úr lagi eða bilað. Ef svo reynist, skal lagfæra það svo fljótt sem auðið er.

Leyfi hafnarstjórnar til að leggja skipi i lægi, er bundið því skilyrði, að ef skipið sekkur láti eigandi þess taka það upp eða sprengja það sundur, svo það skemmi ekki höfnina. Sé því ekki fullnægt innan tiltekins frests, getur hafnar­stjórnin látið framkvæma verkið á kostnað eiganda.

 

23. gr.

Heimilt er að leggja skipi í lægi á höfninni, þó það sé mannlaust, sé það svo þétt, að áliti hafnarstjórnar, sem getur framkvæmt eða látið framkvæma á því rannsókn á kostnað eiganda, að ekki stafi af því nein hætta.

Á skipum, þessum skal tendrað ljós samkvæmt reglum þeim, sem settar eru í alþjóðasjóðferðareglum um skip, er liggja fyrir akkeri.

Áður en skipstjóri fer af skipinu skal hann skriflega tilkynna hafnarstjórn um umsjónarmann, búsettan. i því lögsagnarumdæmi, sem höfnin er í, sem skal hafa umsjón skipsins á hendi, og skal skipstjóri gangs úr skugga um, að hafnarnefnd sé samþykk útnefningu umsjónarmannsins. Hafnarnefnd getur krafizt, ef henni finnst ástæða til, að umsjónarmaður hafi skipstjórnarréttindi og hafi búsetu það nálægt hafnarsvæðinu að auðvelt sé að ná til hans í tæka tíð, er færa þarf skipið til eða annarra þeirra aðgerða, er skipið snertir.

Hafnarvörður beinir til umsjónarmanns öllum, þeim fyrirskipunum, er skipið varða, en umsjónarmaður annað hvort framkvæmir fyrirskipanir hafnarvarðar eða sér um að þær séu framkvæmdar. Verði dráttur á því, skal hafnarvörður láta framkvæma verkið á kostnað skipseiganda.

 

VI. KAFLI

Um fermingu og affermingu eldfimra vökva og sprengiefna.

24. gr.

Skip, sem hafa meðferðis þau efni, sem nefnd eru í næstu grein hér á undan. aðra álíka eldfima vökva, sprengiefni, svo sem púður, dynamit, geomit eða þess konar efni, mega ekki fara inn á höfnina fyrr en tilkynnt hefur verið um farm til hafnarstjóra og afferming leyfð undir eftirliti brunavarða, ef til þess þykir ástæða. Um útskipun á sams konar farmi gilds sömu varúðarreglur.

 

25. gr.

Skip, sem hafa meðferðis þau efni, sem nefnd eru í næstu grein hér á undan. skulu, er þau koma inn á höfnina með þess konar farm, hafa á framsiglutoppi al­þjóðlegt merkjaflagg með bókstafnum "B" að degi til, en að næturlagi rautt ljós í þess stað. Merki skal hafa uppi svo lengi, sem, skipið er í höfn og um hættu getur verið að ræða. Skip, sem ekki hafa framsiglu, skulu þess í stað reisa a. m. k. þriggja metra háa stöng, sem flagginu eða ljósinu skal komið fyrir á.

 

VII. KAFLI

Um gjöld til hafnarinnar.

26. gr.

Öll skip skulu greiða hafnargjöld til hafnarsjóðs, er þau koma inn fyrir tak­mörk hafnarinnar.

Öll gjöld til hafnarinnar greiðast af brúttóstærð skipanna eins og hún er mest, meðan skipið hefur viðdvöl í höfninni. Undanþegin lestagjaldi og bryggjugjaldi eru herskip, skemmtiferðaskip, íslenzk vitaskip og varðskip.

 

Lestagjöld.

27. gr.

a. Öll farmskip, önnur en strandferðaskip, og öll fiskiskip, stærri en eða jafnt og 400 brúttórúmlestir, skulu greiða lestagjald, kr. 3.00 á brúttórúmlest.

b. Strandferðaskip greiða kr. 1.50 á brúttórúmlest.

c. Fiskiskip undir 400 brúttórúmlestum, greiða kr. 3.00 á brúttórúmlest, þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

d. Heimabátar, minni en 10 brúttórúmlestir, greiða lesta- og bryggjugjald einu sinni á ári, kr. 200.00 af hverri brúttórúmlest. Lágmarksgjald skal vera kr. 1000.00.

Gjalddagi er 1. apríl, eftir að.skipið hefur verið gert út frá höfninni i 3 mánuði. Hafi skip legið í höfninni 30 daga samfleytt, skal greiða lestagjald að nýju fyrir næsta 30 daga tímabil. Hafi skipið verið tekið á land til viðgerðar, telst sá tími ekki með, sem: það stóð uppi.

 

28. gr.

Öll skip, sem, leggjast við bryggju eða hafnarbakka, skulu greiða kr. 1.50 á brúttórúmlest fyrir hvern sólarhring eða hluta úr sólarhring, sem skipið liggur bundið. Fiskiskip, 10-399 brúttórúmlestir, greiði gjald þetta eigi oftar en 10 sinnum á mánuði, en bátar minni en 10 brúttórúmlestir greiði ekkert bryggjugjald.

Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum, minni en 400 brúttó­rúmlestir, sem ársgjald i heimahöfn, kr. 162.00 af hverri brúttórúmlest.

 

29. gr.

Hafi skip mælingarbréf með tilgreindum tveim stærðum., skal miða hafnargjald við stærri stærð skipsins meðan það var á höfninni, með hliðsjón af hleðslu (mæl­ingarmerki).

 

Vörugjöld.

30. gr.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum svo og skepnum, lifandi eða dauðum, sem skipað er út og upp á hafnarsvæðinu, með þeim undantekningum, er síðar getur.

 

31. gr.

Fyrir vörur, sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til umhleðslu og eiga því ekki að leggjast á land nema um stundarsakir, greiðist aðeins hálft gjald. Af vörum; sem settar eru á land og eiga að fara aftur með sama skipi greiðist ekkert gjald.

 

32. gr.

Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:

a. Vörur, sem lagðar eru á land um stundarsakir, vegna skemmda á skipi.

b. Hol, olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar, sem fluttar eru úr landi. Enn fremur salt og ís, sem flutt er úr landi í íslenzk skip til eigin notkunar:

c. Umbúðir, sem endursendar eru, enda sé þess getið á farmskrá.

d. Bréfapóstur og farangur ferðamanna.


 

33. gr.

Vörugjald skal reikna eftir máli eða þyngd melt umbúðum. Brot úr gjald­einingu, sem nemur helmingi eða meira, telst heil gjaldeining. Fara skal eftir farmskrá skipa við ákvörðun og útreikning vörugjalds. Skipstjóri er skyldur til að láta hafnarstjóra í té eftirrit af farmskrá skips síns. Sé engin farmskrá fyrir hendi, skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn, sem skip hans hefur fermt eða afferent. Þyki hafnarstjórn ástæða til, getur hún, hvenær sem er, látið ákveða vörumagnið á þann hátt, sem, hún telur hentugast. Reynist vörumagnið meira en upp var gefið greiðir skipið kostnaðinn. Ef ýmsar vörutegundir eru i sömu sendingu og beri farmskrá ekki með sér greinilega sundurliðun í tegundir, skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund, sem hæst vörugjald ber.

 

34. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá segir til um og greiða gjald, sem þar segir. Minnsta vörugjald skal vera kr. 20.00. Leiki vafi á í hvaða flokki skuli telja vörur, skal hafnarstjóri skera úr um það; en úrskurði hans má áfrýja til hafnarstjórnar.

 

Vörugjaldskrá.

35. gr.

I. fl.: Gjald kr. 70.40/tonn:  

a. Vélar og tæki hvers konar og varahlutar til þeirra, heimilisvélar og skrifstofu­brennsluolíur, kol, korn, salt, vikur.

b. Þungavarningur, sekkjavörur, óunnið járn og stál til iðnaðar eða mannvirkja­gerðar, hráefni til iðnaðar, útgerðarvörur, smurningsolíur, sjávarafurðir, land­búnaðarafurðir og iðnaðarvörur til útflutnings.

 

2. fl.: Gjald kr. 150.00/tonn:

Iðnaðar- og byggingarvörur, unnar og hálfunnar, pökkuð og niðursoðin matvæli, ávextir, vefnaðarvörur, fatnaður. '

 

3. fl: Gjald kr. 400.00/tonn:

a. Vélar og tæki hvers konar og varahlutar til þeirra, heimilisvélar og skrifstofu­vélar, bifreiðar, bifhjól, reiðhjól, hjólbarðar, bátar, flugvélar, hreyflar, mæli­tæki, húsgögn. Útvarps- og sjónvarpstæki, hljóðfæri, úr, klukkur, myndavélar, sjónaukar, glysvarningur alls konar, vín, tóbak, ilmvötn, snyrtivörur.

Af flutningi vinnutækja innanlands, skal veita allt að 50% afalátt. b. Vörur sem ekki verða flokkaðar annars staðar eftir þyngd.

 

4. fl.: Gjald kr. 40.00/rúmmeter:

Timbur og annað eftir rúmmáli.

 

5. fl.: Gjald 1%:

Sjávarafli, lagður á land á hafnarsvæðinu, til vinnslu eða brottflutnings. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. Kaupanda aflans ber að afhenda hafna­rstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t. d. afrit af aflaskýrslu til Fiski­félags íslands. Aflagjald fellur í gjalddaga, um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur .fyrir því til hafnarsjóðs, þótt hann vanræki innheimtu þess. Standa ber skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega.

Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 20.00.


 

Ýmis gjöld.

36. gr.

a. Lóða- og geymslugjald fyrir vörur, sem geymdar eru í húsum hafnarinnar eða á lóðum hennar, skal greiða eftir ákvörðun hafnarnefndar.

b. Leigugjald fyrir lóðir og land hafnarinnar, hús, verbúðir og athafnasvæði, sem leigt er einstaklingum eða fyrirtækjum til lengri tíma, skal greiða sam­kvæmt sérstökum samningi m,illi leigutaka og hafnarnefndar, sem ráðuneytið síðar fullgildir.

c. Leigugjald fyrir notkun á tækjum og áhöldum hafnarinnar, þar með talin legufæri (múrningar) skal greiða eftir ákvörðun hafnarnefndar með hliðsjón af leigugjöldum slíkra áhalda eða tækja eins og það gerist á almennum markaði.

d. Af bryggjum og óðrum hafnarmannvirkjum, sem einstaklingar eða félög eiga eða kunna að eignast skal greiða gjald, sem ákveðið er með samningi milli eiganda mannvirkis og hafnarnefndar, sem ráðuneytið síðar fullgildir.

e. Vatn til skipa greiðist með kr. 40.00 fyrir hvern rúmmetra.

f. Önnur þjónusta, sem höfnin kann að láta skipum eða öðrum aðilum í té og ekki er talin falls undir þau gjöld, sem hér eru að framan talin, skal greiða samkvæmt reikningi frá hafnarnefnd.

 

VIII. KAFLI

Um innheimtu og greiðslu hafnargjalda.

37. gr.

Hafnarstjórn sér um innheimtu aura hafnargjalda og skal greiða gjöldin til skrifstofu hafnarinnar.

 

38. gr.

Skipstjóri eða eigandi skips eru ábyrgir fyrir skilvísri greiðslu þeirra gjalda, sem, greiða ber vegna skipsins.

Skipstjóra er skylt að afhenda hafnarstjórn þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, sé þess krafizt og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skipinu, unz gjöldin eru greidd.

 

39. gr.

Að svo miklu leyfi, sem reglugerð þessi kveður ekki á um fasts gjalddaga, skal greiða gjöldin áður en skip fer burt úr höfninni. Enginn skipstjóri getur vænzt þess að fá afgreiðslu fyrir- skip sitt hjá tollyfirvöldum, nema hann sanni með vottorði frá hafnarstjórn, að kann hafi greitt gjöld sin til hafnarinnar.

 

40. gr.

Vörugjöld og leigu fyrir lóðir og geymsluhús, samkvæmt 39. grein, greiðir móttakandi af vörum, sem koma til hafnarinnar og sendandi af vörum, sem fluttar eru úr höfninni. Ef margir eiga vörur með sama skipi, skal afgreiðslumaður skipsins standa hafnarsjóði skil á greiðslunni. Hafi skip ekki farm sinn skráðan, ber skipstjóri ábyrgð á greiðslu vörugjaldsins.

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi i annað, greiðir sá vörugjald, sem affermir. Vörugjald af vörum, sem koma til hafnarinnar fellur i gjalddaga, þegar þær eru lagðar á land og vörugjald af vörum, sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga, þegar vörurnar eru komnar á skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt. Hafnarsjóður hefur haldsrétt í vörunum til tryggingar á greiðslu gjaldsins.

 

41. gr.

Leigu af lóðum og húsum hafnarinnar, skv. 40. grein, svo og fyrir afnot af áhöldum hafnarinnar, skv. 42. grein, greiðir leigutaki samkvæmt ákvörðun samnings.

 

Öll gjöld samkvæmt reglugerð þessari má taka lögtaki og hafa þau forgangsrétt sem önnur opinber gjöld, sbr. 83. gr. b, tölulið 3, skiptalaganna. Auk þess eru skipagjöldin tryggð með lögveði í skipinu og gengur það veð í tvö ár fyrir - samn­ingsveðskuldum.

Skipagjöld teljast í reglugerð þessari öll þau gjöld, sem skipi ber að greiða til hafnarinnar, svo sem lestagjald, bryggjugjald og hafnsögugjald, svo og hvers konar aðstoð, sem skipinu er látin í té af hafnarinnar hálfu.

 

IX. KAFLI

Ýmis ákvæði

43. gr.

Þeir munir eða vörur, sem skipað er upp eða láta á í skip, mega ekki liggja á bryggju eða hafnarbakka og eigi annars staðar á landi hafnarinnar en á þeim stöðum, sem ætlaðir eru til geymslu, nema með sérstöku leyfi hafnarvarðar. Flytja skal burt muni og vörur jafnskjótt og hafnarvörður krefst þess. Sé það eigi gert, getur hafnarvörður gert það á kostnað og ábyrgð eiganda eða umboðs­manns.

 

44. gr.

Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar, tækj­um og útbúnaði, fer eftir almennum reglum.

Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur, skulu þær ákveðnar af 2 óvilhöllum, dómkvöddum mönnum. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, en gera skal það áður en 1 mánuður er liðinn frá því er matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt af 3 óvilhöllum dómkvöddum mönnum. Kostnað­inn við yfirmat greiðir sá, sem krafðist yfirmats, ef það gengur ekki honum í vil. Að öðrum kosti greiðir hinn aðilinn kostnaðinn.

 

45. gr.

Engum, sem bakað hefur sér refsingu eða skaðabótaskyldu fyrir brot á reglu­gerð þessari, heimilast að fara burt úr höfninni meðan mál hans er óútkljáð, nema hann setji tryggingu, sem hafnarstjóri tekur gilda.

 

46. gr.

Hverja þá skipun, sem samkvæmt þessari reglugerð heimilast að gefa for­ráðamönnum skips, skal gefa stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi, og eigi heldur umboðsmaður hans skv. 10. grein. Ef stýrimaður er fjarverandi, má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipunina og er það jafngilt því, sem skip­stjóri hefði fengið skipunina sjálfur.


 

47. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 100 000.00 nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum lögum. Sektirnar renna i hafnarsjóð. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum, nr. 48 29. apríl 1967, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem, hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Höfn við Bakkafjörð, nr. 38 25. apríl 1962, ásamt áorðnum breytingum.

 

Samgönguráðuneytið, 17. nóvember 1972.

 

Hannibal Valdimarsson.

Kristinn Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica