Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

33/1967

Reglugerð um viðauka við reglugerðar. 51 15. maí 1964 um gerð og búnað ökutækja o. fl. - Brottfallin

 

REGLUGERÐ

um viðauka við reglugerð ar. 51 15. maí 1964 um gerð og búnað ökutækja o. fl.

 

1. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 19. gr. getur bifreiðaeftirlit ríkisins, f samráði við framkvæmdanefnd hægri umferðar, ákveðið, að aðaldyr bifreiðar megi vera á hægri hlið.

 

2. gr.

Nú hefur verið ákveðið að heimila notkun bifreiða með aðaldyrum á hægri hlið, sbr. 1. gr., og gilds þá um notkun bifreiðarinnar eftirfarandi reglur:

Þegar staðnæmzt er til að taka farþega eða skila farþegum, skal alltaf stöðva bifreiðina utan akbrautar f þéttbýli. Sama gildir utan þéttbýlis eftir því sem við verður komið.

Bifreið má aldrei stöðva þannig, að farþegar þurfi að stíga inn í hana af ,ak­braut eða út úr henni á akbraut.

Við aðaldyr og hjá ökumanni skulu fest skilti með aðvörun frá bifreiðaeftir­liti ríkisins, svohljóðandi:

"BIFREIÐ ÞESSI ER GERÐ FYRIR HÆGRI UMFERÐ.

Ökumanni ber að sjá um, að farþegar stígi ekki úr bifreiðinni út á akbraut, né inn í bifreiðina of akbraut "

Skilti þessi skulu staðsett þar sem farþegar og ökumaður taka frekast eftir þeim.

 

3. gr.

Frá þeim degi, er hægri umferð kemur til framkvæmds, sbr, . 17. gr.. laga nr. 65 13. maí 1966 um hægri handar umferð, orðast upphaf 4.  mgr: 19. gr. þannig: Á bifreiðunum skulu aðaldyr vera á hægri hlið.

Bifreiðaeftirlit ríkisins getur þó, í. samráði við framkvæmdanefnd hægri um­ferðar, ákveðið, að aðaldyr bifreiðar megi áfram vera á vinstri hlið. Heimild þessi getur verið tímabundin eða ótímabundin.

 

4. gr.

Nú hefur verið ákveðið að heimild notkun bifreiðar með aðaldyrum á vinstri hlið, sbr. 2. mgr. 3. gr., og gilds þá um notkun bifreiðarinnar sömu reglur og greinir í 2. gr., þó þannig, að í stað orðsins "HÆGRI" á aðvörunarskilti komi VINSTRI.

 

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 10. gr. umferðarlaga nr. 26 2. maí 1958 og 16. gr. laga nr. 65 13. maí 1966 um hægri handar umferð, öðlast þegar gildi.

 

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 11. mars 1967.

 

Jóhann Hafstein.

Ólafur W. Stefánsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica