Heimildir til fiskveiða og fiskvinnslu o.fl.

419/2005

Reglugerð um friðunarsvæði í Arnarfirði vegna fóðrunar- og eldisrannsókna Hafrannsóknastofnunarinnar. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 15. maí til og með 31. desember 2005 eru allar veiðar á Arnarfirði bannaðar milli 23°40´ V og 23°46´ V. Að norðan og sunnan markast svæðið af fjöruborði.

Þrátt fyrir 1. mgr. er Hafrannsóknastofnuninni heimilt að stunda eða láta stunda veiðar á svæðinu í rannsóknaskyni. Þá er og þeim aðilum, sem leyfi hafa til rækjuveiða í Arnarfirði, heimilt að stunda rækjuveiðar á svæðinu.


2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 2. maí 2005.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica