Sjávarútvegsráðuneyti

68/2003

Reglugerð um bann við veiðum með línu og fiskibotnvörpu á Sléttugrunni. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 7. febrúar 2003 eru allar veiðar með línu og fiskibotnvörpu óheimilar á Sléttugrunni, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 67° 07´ N – 17° 24´ V
2. 67° 07´ N – 17° 20´ V
3. 66° 51´ N – 17° 04´ V
4. 66° 51´ N – 17° 20´ V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 5. febrúar 2003.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica