Félagsmálaráðuneyti

85/1976

Reglugerð um holræsi fyrir Hofsóshrepp. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi fyrir Hofsóshrepp.

 

1. gr.

Þegar Hofsóshreppur hefur látið leggja holræsi í veg eða götu eða annað opið svæði, eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun eldri hol­ræsa, er þeim húseigendum, er þar eiga hús eða í námunda við, skylt að leggja á sinn kostnað holræsi frá húsinu, er flytji allt skólp frá því út í aðalræsið. Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, svo sem unnt er, leiða í ræsið. Vanræki einhver að gera holræsi eða endurnýja eldra innan hæfilegs tíma, sem sveitarstjórn ákveður, getur hreppurinn látið vinna verkið á kostnað húseiganda.

 

2. gr.

Hofsóshreppur lætur leggja holræsastúta út frá aðalræsi í nýjum götum, sem hann lætur gera eftir 1. janúar 1976. Skulu stútar þessir ná út fyrir götu 2 m inn fyrir lóðamörk húsa. Heimlagnir eru á kostnað húseigenda. Við raðhús eða fjölbýlishús skal um holræsastúta fara eftir nánari skilmálum um lóðaúthlutun.

 

3. gr.

Öll framkvæmdastörf, sem holræsakerfi kauptúnsins varðar, svo sem viðhald, endurbætur, viðauka og umsjón alla, annast maður, sem hreppsnefnd felur það, undir yfirumsjón hreppsnefndar. Er engum heimilt að leggja ræsi í aðalræsi, nema að fengnu leyfi þessara aðila og er mönnum skylt að hlíta í öllu fyrirmælum þeirra um gerð og legu ræsisins og annað þess háttar, er máli skiptir í sambandi við það. Umsóknir skulu skrifaðar. Með umsókn fylgi uppdráttur af holræsakerfi hússins, og uppdráttur er sýni allar lagnir utan húss, bæði í grunnmynd og rúmmynd.

 

4. gr.

Byggingafulltrúi skal hafa eftirlit með því, að nýlagnir séu í samræmi við sam­þykktan uppdrátt og samþykkt þessa. Engar holræsalagnir má hylja, fyrr en þær hafa verið teknar út af byggingafulltrúa, sem getur stöðvað verkið, ef eitthvað áfátt kann að vera.

 

5. gr.

Eigi er heimilt að láta renna í holræsakerfið sýrur, sterkan 1út, olíur, kvika­silfur eða önnur efni, sem valdið geta skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun. Á þeim stöðum, sem slík hætta er fyrir hendi, skal koma fyrir síum, gildrum eða öðru, sem hindrar það, að þessi efni komist út í holræsakerfi hreppsins. Hús­eigandi er ábyrgur fyrir vanrækslu hér á og hugsanlegu tjóni sem af slíkri vanrækslu kann að leiða.

 

6. gr.

Skylt er mönnum að hlíta því, að holræsalagnir séu lagðar um eignarland þeirra eða umráðasvæði og fram fari á þeim nauðsynlegt viðhald. Um bætur fyrir slíkt fer samkvæmt vatnalögum.

 

7. gr.

Kostnaður við aðalholræsakerfi hreppsins greiðist úr sveitarsjóði en til að vega upp á móti þeim kostnaði skal innheimta stofngjöld og holræsagjöld af húseigendum.

 

8. gr.

Áður en tenging heimæðar fer fram, skal húseigandi greiða stofngjald. Inn­heimta skal holræsagjald af öllum húsum í Hofsóshreppi, sem standa við götu eða opin svæði, þar sem holræsi hefur verið lagt í, samkvæmt sérstakri gjaldskrá. Undan­þága frá gjaldskyldu hins almenna fasteignaskatts skapar ekki undanþágu frá greiðslu holræsagjalds. Nú er fasteign, sem greiða ber af holræsagjald, eigi virt fasteigna­matsvirðingu, og ákveður þá hreppsnefnd gjaldið. Greiða skal holræsagjald af húsum og öðrum mannvirkjum, sem í byggingu eru og því eigi virt til fasteignamats, eftir ákvörðun hreppsnefndar. Gjalddagi holræsagjalds er hinn sami og gjalddagi fast­eignaskatts.

 

9. gr.

Holræsagjald af fasteign má taka lögtaki og má gera lögtak í hinu skattskylda húsi án tillits til eigendaskipta. Nýtur holræsagjaldið lögveðsréttar í húseigninni næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

 

10. gr.

Húseigendum er skylt að annast viðhald og endurnýjun ræsa frá húsum sínum innan lóðarmarka. Hreppsnefnd getur sett nánari reglur um framkvæmd mála, og veitt undanþágur ef hún telur ástæður til. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi, sem hreppsnefnd Hofsóshrepps hefur samið og samþykkt og gerð er samkvæmt lögum nr. 15 20. júní 1923, staðfestist hér með til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

 

Félagsmálaráðuneytið, 24. mars 1976.

 

F. h. r. Hallgrímur Dalberg.

Skúli Sigurðsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica