Félagsmálaráðuneyti

173/1974

Reglugerð um holræsi og holræsagjöld í Stykkishólmi. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi og holræsagjöld í Stykkishólmi.

 

1. gr.

            Hreppsnefnd Stykkishólms hefur ein heimild til að leggja holræsi í Stykkishólmi, nema sérstaklega sé samið um aðra tilhögun.

 

2. gr.

            Þar sem hreppsnefnd hefur látið leggja holræsi í götu, er hverjum húseiganda, sem 1óð á þar að eða i námunda við, skylt að leggja á Sinn kostnað ræsi frá húsinu, er flytji allt skólp frá því í aðalæð. Sé um óeðlilega vegalengd að ræða ber sveitar­sjóði að greiða kostnað frá lóðarmörkum.

 

3. gr.

            Hreppsnefnd ræður menn, sem teljast skulu hæfir til að leggja og ganga frá hol­ræsum.

Engum er heimilt að leggja ræsi í aðalræsið, nema að fengnu leyfi ofangreindra aðila, og er húseigendum skylt að hlíta fyrirmælum þeirra um gerð og legu ræsis og annað það, er máli skiptir í sambandi við það.

 

4. gr.

            Kostnaður við holræsagerð hreppsins greiðist úr sveitarsjóði. Til þess að standa straum af kostnaði skal hver húseigandi greiða sveitarsjóði tengigjald, er hann tengir hús sitt við holræsakerfi hreppsins. Tengigjald þetta skal vera kr. 5 000.00 fyrir hverja íbúð í húsi. Fyrir atvinnuhúsnæði skal tengigjaldið vera kr. 12.00 á hvern rúmmetra. Húseigandi getur eigi krafist tengingar við holræsakerfið, fyrr en tengi­gjaldið er greitt eða um það hefur verið samið. Þá skal og hver húseigandi greiða árlegt holræsagjald í sveitarsjóð, er nemi 0.1 % af fasteignamatsverði húss og lóðar, þó aldrei lægra en kr. 500.00. Holræsagjöldin skal reikna f heilum krónum.

            Gjöld samkvæmt grein þessari er hreppsnefnd heimilt að hækka eða lækka um allt að 50 af hundraði, án þess að samþykki ráðuneytis komi til.

 

5. gr.

            Húseigandi ber ábyrgð á greiðslu holræsagjalds. Gjaldið hefur lögtaksrétt og er tryggt með lögveðsrétti í 1óð og mannvirkjum lóðarhafa á henni næstu 2 ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Ár­legur gjalddagi holræsagjalda er 2. janúar ár hvert.

 

6. gr.

            Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 10 000.00, nema þyngri refs­ing liggi við að lögum, sem renna i sveitarsjóð. Mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara með að hætti opinberra mála.

            Reglugerð þessi, seta samin er og samþykkt af hreppsnefnd Stykkishólmshrepps, staðfestist hér með samkv. vatnalögum nr. 15 20. júní 1923, til að öðlast gildi þegar f stað og birtist til eftirbreytni öllum, sem hlut eiga að máli.

 

Félagsmálaráðuneytið, 30. maí 1974..

 

F. h. r.

Hallgrímur Dalberg.

Guðmundur Karl Jónsson.

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica