Félagsmálaráðuneyti

414/1973

Reglugerð um holræsi og holræsagjöld í Hvammstangahreppi. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi og holræsagjöld í Hvammstangahreppi.

 

1. gr.

Þegar hreppurinn hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði, eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun eldri holræsa, er þeim húseigendum, er þar eiga hús að eða i námunda við, skylt að leggja á Sinn kostnað ræsi frá húsinu, er flytji allt skólp frá því út í aðalræsi. Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, eftir því sem unnt er, leiða f ræsi. Vanræki einhver að láta gera holræsi (frá húsi að göturæsi) innan hæfilegs frosts, getur hreppsnefnd látið vinna verkið á hans kostnað. Sama gildir, ef húseigandi vanrækir viðhald heim­æðar.

 

2. gr.

Öll framkvæmdastörf, sem holræsakerfi staðarins varða, svo sem viðhald, endur­bætur, viðauka og umsjón alla, annast hreppsnefnd, eða þeir menn, sem hrepps­nefnd felur það, undir hennar umsjón.

Er engum heimilt að leggja ræsi í aðalræsi, nema með leyfi þessara aðila, og er mönnum skylt að hlíta í öllu fyrirmælum þeirra um gerð og legu ræsis og annað þess háttar, er máli skiptir í sambandi við það.

Sveitarstjóri annast reikningshald og fjárreiður holræsagerðarinnar.

 

3, gr.

Kostnaður allur við holræsakerfið greiðist úr sveitars.jóði. Til að standast þann kostnað ber hverjum húseiganda, sem tengir heimæð við aðalæð, að greiða tengi­gjald, samkvæmt ákvörðun hreppsnefndar. Einnig her hverjum húseiganda, sem á hús víð veg, götu eða opið svæði, þar sem holræsi er lagt í, að greiða holræsa­gjald til hreppsins, sem miðast við fasteignamat húss og lóðar 0.15% samkvæmt núverandi fasteignamati, þó aldrei lægra en kr. 600.00.

Tengigjald kr. 3 000.00 fyrir hús með einni íbúð, en auk þess kr. 1 000.00 fyrir íbúð umfram eina, fyrir atvinnuhúsnæði kr. 6 000.00.

Gjöld þessi getur hreppsnefnd hækkað eða lækkað eftir ástaeðum um 50% án samþykkis ráðuneytis.

 

4. gr.

Húseigandi ber ábyrgð á greiðslu holræsagjalds gagnvart hreppsnefnd. Kröfur, sem hreppsnefndin kann að öðlast samkv. 1. og 3. gr., má taka lögtaki á kostnað gjaldanda, og eru gjöld þessi tryggð með lögveði í húseigninni í næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

Gjalddagi holræsagjalds er 15. janúar ár hvert.

5. gr.

Brot á r eglugerð þessari varða sektum, allt að krónum 5 000.00 nema þyngri refsing liggi við samkv. lögum. Mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið með að hætti opinberra mála.

 

6. gr.

Reglugerð þessi tekur gildi 1. janúar 1974.

Reglugerð þessi, sem hreppsnefnd Hvammstangahrepps hefur samið og sam­þykkt samkvæmt lögum nr. 15 20. júní 1923, staðfestist hér með til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um holræsi á Hvammstanga, nr. 169 frá 21. október 1949.

 

Félagsmálaráðuneytið, 31. desember 1973.

 

F. h. r.

Hallgrímur Dalberg.

Guðmundur Karl Jónsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica